og ógeð, ji hvað það er viðbjóðslegt þegar börn æla. Er heima í dag með Kristínu því hún vaknaði í nótt og búin að æla út um allt rúmið sitt :s svo að sængin hennar og koddinn eru í þvottavélinni og ég er bara að vona að lyktin náist úr...
Annars lítið títt. Er að fara til Amsterdam eftir 8 daga, gisti hjá Sissu eftir viku áður en við skellum okkur í morgunflug til Schipol að hitta Bjarna og Gumma. Í augnablikinu er 21 gráðu hiti þar og heiðskírt, ekki leiðinlegt...
Komin á "nýjan" frúarbíl, Gummi fékk nýja bílinn okkar í gær og Sigga keypti græna gittið. Nýji bíllinn er bara fab, hrikalega flottur og geðveikur í akstri. Enda keyrðum við hann rúma 100 km í gær, sýna tengdó og Sissu og Bjarna. Stoltir eigendur þarna á ferð ;) Svo að núna krúsa ég á mösdunni og finnst það ekkert slæm skipti ;) algjör gella sko...
Jæja, farin að sinna snúllunni minni. Gefa henni ristað brauð og eitthvað stemmandi. Ætti líka að fá mér eitthvað í gogginn því að maginn á mér er búinn að veltast um nokkrum sinnum í morgun :s má nú ekki við því að verða veik núna...
c",)
miðvikudagur, maí 03, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli