mánudagur, mars 28, 2005

Og...

Þá er öðru gilli af þremur lokið um þessa helgi. Núna er ég að fara að setja í djöflaköku og eitthvað fleira gott því að fjölskyldan mín er að fara að mæta hingað í dag. Í gær komu tengdó og pabbi og dista í mat og það gekk alveg rosalega vel. Reyndar fóru Dista og pabbi heim í fyrra fallinu því að pabbi er að fara upp á Akranes í dag í undirbúning fyrir mjaðmaaðgerð sem hann fer í á morgun. En tengdó...þau voru hér til miðnættis og fengu meira að segja nesti með sér í fljótandi formi svona til að geta haldið áfram heima. Við Gummi erum búin að sjá það að það er ekkert slæmt að koma til okkar í bjóð...alla veganna eru góðar veitingar í boði langt fram eftir öllu og mikið af þeim. Bara gaman að geta veitt vel : )
Svo er bara vinna á morgun og fyrsti dagur í nýjum skóla hjá Þorvarði og Þórunni Önnu. Það gengur nú vonandi allt vel. Þorvarður fær reyndar að sofa aðeins út á morgun því hann mætir ekki fyrr en um 9 eins og alla mánudaga og þriðjudaga. Það finnst honum ekkert smá sport, að fá að sofa lengur en systir sín og nudda henni upp úr því...

Well, farin að baka .

c",)

sunnudagur, mars 27, 2005

Gleðilega páska...

öll sömul : )

Jæja, þá erum við flutt í mosó. Nú erum við búin að búa hérna í 8 daga.... Orðnir Múslingar af lífi og sál. Þetta er alveg hreint yndislegt, okkur líður alveg voðalega vel hérna. Við heyrum ekkert í nágrönnunum og þeir vonandi ekki í okkur. Þetta er bara eins og að vera í einbýli. Pallurinn á sko eftir að koma sér vel þegar fram líða stundir, það verður sko æðislegt að sitja þar í sumar í góða veðrinu og drekka í sig kvöldsólina. Og svo er náttúrulega dýrlegt að í ekki stærra bæjarfélagi séu 2 lágvöruverslanir og þar af ein opin til miðnættis. Svo að það þarf ekkert að vera að stressast í búðum eftir vinnu, bara skella sér í sveitina og versla þar. Það á sko eftir að koma sér vel...
Kristín Fríða er sko komin með sitt bleika herbergi. Þegar fyrsta umferðin af litnum var kominn á hélt ég að við hefðum keypt neonbleikan en hann skánar svona eftir því sem tíminn líður. Alla veganna er hún himinlifandi yfir þessu öllu saman. Þorvarður stakk af til pabba síns stuttu eftir að við fluttum svo að það er svo sem ekki komin mikil reynsla á það. Hann byrjar svo í skólanum á þriðjudaginn og þá förum við væntanlega að fá einhver viðbrögð hjá honum.
Þórunn Anna er líka stungin af. Hún skellti sér í sumarbústað með Margréti vinkonu sinni og kemur heim á morgun. Svo að það er frekar rólegt hérna heima við...
Við erum nú þegar búin að halda 1. innflutningspartýið þó að við séum bara búin að vera hérna í rétt rúma viku. Við ákváðum að kýla á þetta á föstudeginum langa = flöskudeginum langa. Mætingin var góð, fámennt en góðmennt. Hér var drukkið og etið til rúmlega 4 á laugardagsmorgninum og eftir að við tékkuðum á liðinu í gær þá komumst við að því að þetta var almennilegt því heilsan var frekar slæm hjá flestum...
Svo er sko næsta bjóð í dag, við fáum foreldra í mat til okkar seinni partinn og erum að fara að elda 2 læri ofan í liðið. Það er eins gott að við erum búin að kaupa nýtt borðstofuborð til að koma þeim öllum fyrir. Þetta verður voðalega gaman. Gott að geta boðið í mat og gert það almennilega. OG við erum sko ekki búin þessa páskana því að svo kemur fjölskyldan mín í kaffi og kökur á morgun. Nóg að gera á stóru heimili. Það er nú allt í lagi, við sofum svo vel hérna í sveitinni svo ég verð nú ekki þreytt við þessi bjóð : )
Jæja, best að fara að ná mér í smá bita af egginu áður en það klárast...

c",)

p.s. til hamingju með daginn mamma mín : )