föstudagur, júlí 29, 2005

Jæja...

hér sit ég eiginlega föst í bakinu og er ennþá síður á leið út á land með öllum hinum vitleysingunum. Nenni ómögulega að eyða helginni á bakinu eins og könguló og geta enga björg mér veitt. Verð miklu frekar heima hjá mér og nýt þess í ræmur. Við getum ekki einu sinni farið í RVK í dag því að vörubílstjórar ætla að loka leiðinni upp í Mosó og glætan að ég eyði deginum hangandi í bíl bara til þess að komast heim til mín aftur. Sénsinn, bensinn.

Hérna er heimasíðan hjá nýjustu frænku minni, henni Aliciu Ósk Enabulele http://barnaland.is/barn/28630/
Hún er að koma til Íslands eftir 2 vikur, nánara tiltekið föstudaginn 12. ágúst til að vera hérna í heila 2 mánuði ásamt mömmu sinni og pabba og stóra bróa. Einnig hef ég heyrt aðeins af því að fleiri ættingjar að utan ætli að láta sjá sig en það kemur nú allt í ljós...Ég ætla sko aðeins að fá að spilla henni, þó að hún sé svona ung. Eggjahljóðin í mér yfirgnæfa fuglasönginn hérna heima, svei mér þá :s og ekki er það auðvelt ;)

Jæja, best að rölta aðeins um svo ég festist ekki alveg. Ekki að þetta sé þægilegt ( og ég á ekki pantað í hnykk fyrr en eftir 2 vikur !!!!! )

c",)

þriðjudagur, júlí 26, 2005

brúmm, brúmm...

Við ákváðum að skella okkur í stuttan bíltúr í gær að Seljalandsfossi undir Eyjafjöllum því þar var víst blíðan meiri og betri en í bænum, ótrúlegt en satt. Sá stutti bíltúr entist í heila 8 klst því að við ákváðum aðeins að kíkja út fyrir eðlilega vegi og fara á staði sem hvorugt okkar mundi eftir að hafa farið á. Fyrst fórum við aðeins í gegnum Fljótshlíðina og kíktum á staðinn þar sem síðasta ættarmót var haldið á en við mættum ekki vegna brúðkaups Gillu og Stefáns. Jú jú, ágætis staður en að rukka 9000 kjell fyrir þessa kofa var auðvitað glæpur út af fyrir sig. Við stoppuðum minningarlundi um Guðmund ( eða Þorstein) og fengum okkur aðeins að borða. Kristín var reyndar of upptekin af því að skoða umhverfið svo hún gleymdi því alveg að borða. Svo héldum við sem leið lá að Seljalandsfossi þar sem ég rifjaði upp gamla, góða tíma frá því ég var lítil á leið í útilegu með mömmu og pabba því við stoppuðum alltaf þarna og áðum yfir eina nótt. Góðar minningar það ;)
Svo þegar við vorum að renna í bæinn datt okkur í hug að kíkja aðeins í Galtalæk því við höfðum aldrei komið þangað. Og í raun hafði ég aldrei komist nær Heklu en ég gerði í gær. Fínn spotti þarna upp eftir og augljóslega mjög gott að vera með börn þarna. Þó að það sé nú ekki planið um næstu helgi að leggjast þar út með öllum hinum. Þar sem við vorum svo nálægt Búrfelli og þ.a.l. nálægt virkjun þá fannst mér alla veganna skynsamlegt að keyra aðeins upp fyrir Galtalæk því þar hlyti að vera hægt að fara yfir Þjórsá á brú og komast niður í Þjórsárdalinn. Við keyrðum og keyrðum án þess að sjá nein merki um brú og vorum komin langleiðina upp á Sprengisand þegar Gummi ákvað að þetta væri orðið gott og við skyldum snúa við. En ég hafði það svo sterkt á tilfinningunni að brúin væri skammt frá svo við héldum aðeins áfram og viti menn, brúin var þarna og allt í einu vorum við komin á þetta fína malbik og laus við mölina. Yndislegt.
Við kíktum aðeins við á Þjóðveldisbæinn við Stöng í Þjórsárdal og þó að það væri búið að loka fengum við leiðsögn um svæðið því það mætti okkur voðalega fallegur svartur og hvítur fress sem að rölti með okkur sem leið lá kringum bæinn. Hann var voðalega hændur að okkur og leyfði Kristínu að halda á sér en það leyfa ekki margir kettir get ég sagt ykkur.
Eftir skoðunina keyrðum við sem leið lá í gegnum Laugavatn, yfir Lyngdalsheiðina og heim í gegnum Þingvelli. Og þetta tók aðeins 8 klst :s og Kristín sofnaði ekkert á leiðinni. Hún sofnaði ekki fyrr en að ganga 1 í nótt, aldeilis orkubúnt. Svo vaknaði hún eldhress í morgun um 10 og er farin að leika sér við Yrsu Björt, uppáhaldsvinkonu sína í músó.
Við verðum væntanlega heima í dag enda er veðurspáin best hérna megin á landinu. En á "næstum því hálendisrúnt" okkar í gær þá kviknaði hugmynd um að keyra Kjalarveginn yfir á norðurlandið. En það verður ekki gert nema það sé meira og betra veður þar. Svo ég er barasta farin út á pall að bæta við freknum ;)

c",)

mánudagur, júlí 25, 2005

Nú er ég í sjokki !!!!

Ég fékk nett fyrir hjartað í morgun þegar ég fletti Fréttablaðinu. Gamla húsið mitt á Laufásveginum er á sölu og aðeins á 16.9 millur.http://www.mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=168950
Á þetta að vera grín ? Það er nú ekki nema sko alveg heilir 38 fm að stærð, hvað er eiginlega að fólki ??? Þetta er alveg 10 millum meira en ég seldi það á fyrir 7 árum síðan, ekki að það hafi verið gert eitthvað svakalega mikið fyrir það í millitímanum. Sama eldhúsið, gólfefni og fleira. Þetta er bara brandari, þvílík græðgi og vitleysa, segi nú ekki annað...

c",)

sunnudagur, júlí 24, 2005

Og já...

sumarið er komið, hefur alla veganna látið sjá sig þá daga sem ég hef verið í sumarfríi. Sést líka á bakinu á mér, er með voðalega lekkert far eftir brjóstahaldarann á bakinu en annars með hraustlegan lit annars staðar á kroppnum ;)

c",)

M M M M M...

Nú sit ég í rúminu heima hjá mér að blogga...voðalega gaman að vera loksins búin að fá þráðlausa netið hingað heim.

Í dag er ég frekar slöpp og hef alveg ástæðu til. Í gær vorum við nefnilega nokkrar að gæsa hana Helgu Björgu, sem er eiginlega elsta sveitasysturin mín. Við vorum mættar heim til hennar rétt um hádegisbilið í gær, henni til mikillar skelfingar. Henni var samt farið að gruna að það myndi nú gerast eitthvað þennan laugardag enda bara 2 vikur þangað til hún og Ásgeir ganga að altarinu og hætta að lifa í syndinni miklu. Alla veganna var hún skreytt aðeins með heimatilbúnu slöri og blómakransi og sagt að drífa ofan í tösku eitt og annað sem gæti komið að gagni um daginn. Svo héldum við áleiðis í Mosfellsbæinn og stefndum upp á Úlfarsfell þar sem að það átti að fleygja Helgu fram af bjargi eða því sem næst. Eða alla veganna hélt hún það. Útsýnið var algjörlega frábært, enda alveg heiðskýrt og glampandi sól. Við biðum og biðum og ekki kom fluggaurinn að hitta okkur ( enda var það svo sem ekki planið ). En Helga var meira en til í allt þarna uppi og kom okkur verulega á óvart. Eftir að hafa virt fyrir okkur RVK svona ofan úr lofti héldum við niður fjallið í öruggum aksturshöndum Freydísar. Niðri við fjallsbrúnina komu föngulegir mótorhjólatöffarar til móts við okkur og tóku Helgu á bak og ræddu við hana um galla þess að ganga að eiga Ásgeir. Þeir sáu alls enga kosti við þennan ráðahag. Á meðan þetta var rætt fram og tilbaka vorum við niðri í Grasagarðinum að undirbúa pikknikk með skaufaköku nokkurri ásamt öðru gúmmelaði. Loksins kom Helga til okkar og orðin nokkuð hífuð enda helltu töffararnir vel og mikið í hana.

Við nutum sólarinnar niðri í garðinum þangað til að við þurftum að drífa okkur á næsta stað. Við keyrðum í Kópavoginn á Mecca spa þar sem að Helga var sett í allsherjar dekur á meðan við svömluðum í pottinum og sundlauginni. Yndislegur staður og við eigum víst deit þarna mánaðarlega héðan í frá, við stelpurnar ;) Svo héldum við niður á Óliver og fengum okkur jarðaberja mojito ( kann nú betur við orginalinn ) og löbbuðum svo upp á Rosso Pommodoro og fengum okkur ógeðslega góðan mat ( eins og Helga sagði nokkrum sinnum um kvöldið ) Fyrst fengum við 3 konar forrétti, svo fengum við 3 konar pizzur og að lokum ( þegar við vorum allar orðnar ansi saddar ) kom nautakjöt og franskar og sjávarrétta pastaréttur með kolkröbbum ( sem horfðu víst eymdarlega á Helgu ) og hörpuskel. Hrikalega gott en við bara gátum ekki meir.

Klukkan var nú ekki margt svo að við þurftum að finna okkur eitt og annað að gera þar til við komumst á NASA á stuðmannaball. Helga var dregin inn á hvern pöbbinn á eftir öðrum og gefið misgóð skot og hún er enn að tala um hvað bláa gayol skotið var viðbjóðslegt. Hún fékk líka skot kennt við hrísgrjónagraut ( hvernig sem það getur verið gott ). Svo kom að því að hún hitti sólmeitinn sinn, eða því sem næst. Niðri í Austurstræti sat maður klæddur í bláar stuttbuxur, ber að ofan og í bleiser sem var bleikur og grænn og það sem toppaði hann var að það var bleikur grís aftan á jakkanum.Þar sat hann sem sagt og spilaði lög á gítar. Ekki sín eiginn, bara eitthvað bull út í loftið. Hann greip eitt og eitt orð og samdi lag um þau. Mér tókst að ná nokkrum myndum af þeim skötuhjúum og m.a. söngnum um Bjarnastaðabeljurnar. Þetta verður örugglega sýnt í brúðkaupinu og hlegið mikið að því.

Loksins var NASA opnað svo við drifum okkur þangað inn og vorum eiginlega fyrstar þangað inn. Við drukkum svona aðeins meira og dönsuðum aðeins og biðum eftir því að Stuðmenn ásamt Hildi Völu stigu á sviðið. Og þvílíkt og annað eins, ég er sárþjáð af harðsperrum og hálfhás eftir "sönginn". Þetta var alveg hrikalega gaman. Við vorum nú eiginlega alveg búnar á því um 3 leitið og drifum okkur út, fengum okkur aðeins að borða (þær sem gátu hugsað sér það ) og svo náði elskan mín, hann Gummi í okkur og voðalega var gott að leggjast upp í og sofna. Góðum degi var lokið og við vorum allar ánægðar með hvernig hann fór. Ég kíkti einmitt til Helgu áðan að ná í töskuna mína og hún var svona mellómygluð, Ásgeir miklu verri eftir steggjunina á föstudaginn síðasta.

Alla veganna er þessum hremmingum þeirra lokið og þau geta farið að ganga í það heilaga og hætt að lifa í syndinni. Annað en ég ;)

c",)