fimmtudagur, nóvember 24, 2005

30 og nálgast óðfluga...

já já, jólin koma hvort eð er ; )

Það er víst fyrsti í aðventu á sunnudaginn svo ég gerði þau mistök í gær að segja Kristínu að við myndum setja ljós í gluggann hjá henni um helgina. Áður en ég gat snúið mér við þá var hún sko farin að segja að jólin kæmu um helgina og hún ætti þ.a.l. afmæli bara eiginlega alveg núna ( hefur þó vit á því að hún eigi afmæli fyrir jól ) og var ekkert smá lukkuleg með þetta. Hún var álíka óánægð þegar mér tókst að leiðrétta þennan misskilning, leit í kringum sig og benti mér á að aðrir væru byrjaðir að skreyta hjá sér, við gætum í það minnsta farið að kveikja á nokkrum seríum... svo það verður skreytt aðeins á sunnudaginn.

BL = 8.3 farin, er að stinga af í þessum málum, finnst það frábært og sakna kg engan veginn. Fari þau og veri !!!!


c",)

þriðjudagur, nóvember 22, 2005

og þá eru það...

32 dagar til stefnu.

Og ég var að panta miða á frostrósirnar ( dívurnar ) 10. desember, ekkert laust nema í stúkunni. Miðað við reynslu af tónleikum í Laugardalshöll þá ættum við alla veganna að sjá eitthvað. Hlakka mikið til, þetta verður rosalegt.

Svo fékk ég boðsmiða í pósti í gær á jólagleði Decode 16. desember.Um að gera að eyða peningum í boðskort og að senda þau heim í pósti. Allt of klént að senda þetta bara á innanhúsmeil, ekki satt ? Spurning hvort við mætum eður ei, á víst að vera með 3falt barnaafmæli daginn eftir og verð að vera í stuði þá....seinni tíma spekúleringar ; )

c",)

mánudagur, nóvember 21, 2005

Og...

ekki má gleyma þeim sem eiga afmæli í dag... Til hamingju með afmælið elsku Boggi bró, ellismellurinn þinn.

Og svo erum við Gummi víst 2 ára í dag, já..fyrir 2ur árum sá drengurinn ljósið og ákvað að ég væri nú vænlegri kostur en það að vera batchelor dauðans áfram. Heyr, heyr :) ég held að hann sjái nú ekki mikið eftir því að hafa tekið þessa ákvörðun...blessaður.
Ég elska þig, ástin mín eina : )

c",)

33 dagar...

til jóla ;) styttist í þetta.

Ef þið viljið komast í nettan jólafíling þá er hægt að hlusta á jólalögin á létt, væmið og viðbjóðslegt ( www.lett.is ), byrjar nú fullsnemma fyrir minn persónulega smekk...

Annars gengur vel með jólatrésteppið, tók mér pásu á laugardagskvöldið þegar ég stakk mig á nálinni við að kappmella ( komið gott það kvöldið ). Í staðinn lagðist ég í nettan 6itc fíling og horfði á 3 þætti úr 3. seríu. Yndislegt að geta leyft sér þetta svona af og til og inn á milli.

Svo var ég voðalega hugrökk í gær og skellti mér með börnin í sunnudagsbíltúr í Borgarnes í 2 ára afmæli hans Axels. Voðalega gaman, Gilla skellti á borðið veitingum sem hefðu vel átt heima í fermingarveislu, er að gæla við að hnupla henni í apríl á næsta ári...
Á heimleiðinni lentum við í ýmsum sýnishornum, blindbyl, rigningu, hagléli og sólskini, voðalega íslenskt ; )

Svo til að toppa góðan gærdag þá fékk ég símtal frá Gautaborg, elskan mín hún Þórunn Kristín búin að skila sér heim frá Nígeríu, nýgift og alsæl. Nú þarf hún bara að bíða eftir því að fá Andrew til sín, vonandi gengur það sem fyrst. Ég þarf að drífa í því að skoða myndirnar sem ég reyndi að taka af börnunum mínum um daginn og senda henni nokkrar. Og sjá hvort að þær séu nothæfar í jólakortin þetta árið. Efast um það en reyni mitt besta.

c",)