Af hverju í fjandanum þarf fólk að stöðva algjörlega ( keyra á 0 km hraða ) þegar það sér löggubíl ? Ég varð vitni að þessu í morgun í Ártúnsbrekkunni, af öllum stöðum. Ég keyrði framhjá Lögreglubíl í miðri brekkunni á 5 km hraða af því að einhverjum fyrir framan mig datt í hug að negla niður. 3 akreinar að keyra á nærri 0 km hraða. Og þaðan í frá var auðvitað keyrt á eðlilegum hraða. Þetta þoli ég ekki, af hverju er ekki hægt að keyra á eðlilegum hraða út í gegn ?
pirripú.....
c".)
miðvikudagur, janúar 09, 2008
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)