laugardagur, júní 10, 2006

Þunnur...

laugardagur runninn upp og jafnvel vel hálfnaður. Ji hvað ég er tussuleg í dag :s kíkti nebbla aðeins á nágrannana í gær og það endaði með því að við drukkum eina hvíta, 2 rauðar og nokkra bjóra fyrir utan koníakið sem við sulluðum í undir lokin. Reyndar byrjaði ég að skála við hópinn í vinnunni kl. hálfþrjú í gær svo þetta var ansi gott í gær. Skreið upp í rúm um 3 leitið í nótt og bara sofnaði um leið. Gummi kom ekki heim fyrr en um 6 ( heldur hann ) og er ekki enn kominn á fætur, býst ekki við stórafrekum frá honum í dag. Stelpurnar eru úti að leika við Árna ( nágrannahundinn ) því pabbi þeirra hefur ekki enn sést, ætlaði sko að vera kominn kl. 9 í morgun. Svo ekki býst ég heldur við afrekum frá honum þessa helgina. Sem er svo sem í lagi mín vegna, leiðinlegast fyrir stelpurnar.

Annars bara stutt vinnuvika að baki. Hvítasunnuhelgin var sko busy, busy. Sérstaklega laugardagurinn. Ég byrjaði að skála við grannana um 4 leitið, nokkrir bjórar runnu niður áður en ég fór til Fanneyjar í grillpartý. Algjört gúmmelaði sem hún galdraði á borðið og lifir lengi í minningunni. Svo skelltum við okkur í kveðjupartý til Róberts sem er núna farinn til USA að meika það. Ég stoppaði reyndar mjög stutt, 1 bjór og smá sígó og þá var Gummi mættur til að koma mér í næsta partý. Sem var sko útskriftarpartý hjá Gillu stepsister í Borgarnesi. Það var eiginlega rólegasta partýið af öllum sem ég fór í á laugardaginn. Ég gerði misheppnaða tilraun að gera mojito úr stroh, ekki gott. Það var bara ekkert annað romm í húsinu. Dista mín skellti í sig öllum bríserum í húsinu eða reyndi það alla veganna. Þegar henni var keyrt loksins í bústaðinn til pabba þá gengum við um og söfnuðum öllu hálfu bríserunum eftir hana sem lágu út um allt. Svo þegar nóg var komið þá keyrði Gummi okkur á hótel Hamar sem er rétt utan við Borgarnes þar sem við sofnuðum í yndislegu rúmi ( skeiðvelli ) og sváfum eins og ungabörn fram á sunnudag. Þá lá leiðin í bústaðinn til pabba og Distu að ná í Kristínu og Írisi sem voru búnar að vera þar í góðu yfirlæti að leika sér í barbie og pony út í eitt. Svo var ekkert lítið yndislegt að koma heim aftur og fatta að það var meira að segja einn frídagur eftir. Geðveikt, kom sér mjög vel. Ég myndi alveg vilja hafa það á tilfinningunni í dag þar sem ég er búin að lofa Siggu nokkrum mojitoum hjá mér í kveld. Sjáum nú hvernig það fer...

Svo bara aftur stutt vinnuvika held ég. Ég er að fara í jarðarför á fimmtudaginn á Selfossi svo ég vinn stutt þann daginn. Svo er Sælukot að fara í Húsdýragarðinn á föstudaginn svo ég er að gæla við að fara með þeim og ná nokkrum myndum af Kristínu og vinkonum hennar áður en leiðir skilja þar sem þær eru að fara í skóla í haust. Ji hvað hún er orðin stór og fullorðin... :s

Jæja, farin að horfa á næsta leik á HM. Trinidad-Svíþjóð. Held auddað með frændum vorum, ekki spurning. Var mest skúffuð yfir því að Paragvæjar næðu ekki að jafna á móti Englendingum því þeir áttu engan veginn skilið að vinna leikinn. Leiðinlegur leikur þar á ferð.... Opnunarleikurinn var snilld, vil að Þýskaland komist áfram úr riðlakeppninni svo það sjóði ekki upp úr þarna í Germaníunni. Það væri leiðinlegt...

Jæja, hætt að bulla í bili !!!

c",)