að netið hjá okkur sé ekki alveg að höndla umferð fjölskyldunnar í augnablikinu, mér finnst líka svo voðalega skemmtilegt að bíða eftir því að síður opnist... :s eða hittó !!!
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SISSA MÍN :) bara svona á meðan ég man...ég reyndi að hringja í hana áðan en fékk ekkert svar svo ég sendi henni bara smess, svona til að láta vita að ég muni nú alveg eftir afmælisdeginum hennar.
Annars vorum við að skríða heim, skruppum í bústað í Borgarfjörðinn á föstudaginn eftir vinnu. Það var nú reyndar stuttu eftir hádegi því að við ákváðum að byrja helgina snemma. Það er náttúrulega fimbulkuldi á landinu svo að það fyrsta sem við gerðum þegar við komum upp eftir var að setja pottinn af stað og skrúfa upp í ofnunum í bústaðnum. Þetta er mjög fínn bústaður, vel rúmgóður og vel útlátinn ( fyrir utan ryksuguna sem var mjög lasburða ). Tengdó voru í næsta bústað við okkur svo að við röltum mikið á milli. Þau buðu okkur í súpu í brauði á föstudagskvöldið og svo drukkum við aðeins ofan í það. Voðalega notalegt, mjög matarmikil svona súpa. Við fórum svo í pottinn hjá þeim um miðnætti þegar krakkarnir voru sofnaðir og stiknuðum þar aðeins. Eftir það var ansi ljúft að leggjast í bólið með opinn gluggann og finna næðinginn fyrir utan.
Þrátt fyrir það að við værum í fríi vorum við komin á fætur eldsnemma á laugardagsmorguninn og við stelpurnar fórum aðeins í pottinn á meðan Gummi og Þorvarður fóru í Borgarnesið að kaupa hlaup. Alveg bráðnauðsynlegt. Svo dobbluðum við Óskar að koma með Dóróteu og Róbert seinni partinn og biðum eftir þeim að elda nautakjötið. Eða Guttorm blessaðan eins og maturinn var kallaður það kvöldið. Svo var drukkið aðeins meira og strákarnir enduðu í pottinum á meðan ég og Dórótea fannst meira heillandi að kúra með afkvæmunum. Svo vorum við bara eldhress í morgun, komin á fætur snemma. Eftir enn eina pottferðina drifum við okkur í að þrífa bústaðinn ( eða réttara sagt ég ) með hinni lasburða ryksugu og tusku í hendi. Og svo bara brunað í bæinn og heim. Alltaf gott að koma heim aftur. Reyndar komumst við að því að nýja leðursófasettið okkar lyktar ( eins og leðursófasett eiga svo sem að gera ) en þetta var alveg too much. Svo að við snöggkældum íbúðina með því að opna gluggana og þetta er svona að verða allt í læ. Svo nú sit ég og prjóna á mig lopapeysu enda kominn vetur á klakanum. Ekki enn kominn október en alveg skítkalt úti :s ég kemst bara bráðum í jólafíling ef þetta verður svona áfram.
Svo er bara vinna á morgun, nóg að gera eins og venjulega. Þessi vika ætti nú að vera snögg að líða því að það er eftir nógu að bíða um næstu helgi. Í fyrsta lagi er eitt ár á laugardaginn næsta síðan undirrituð fór á skeljarnar og í tilefni þess verður svaka veisla um kvöldið. Reyndar ekki í tilefni ársafmælis trúlofunar heldur er árshátíð Samskipa um næstu helgi með tilheyrandi húllumhæi. Sálin á að spila svo þetta verður án efa hrikalega gaman. Ég er að láta þrengja síðkjólinn minn svo ég geti nú litið svona skítsæmilega út um næstu helgi ;) og hlakka bara voðalega mikið til.
well, best að halda áfram að prjóna...kuldinn drífur mig áfram ;)
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli