Jólin komin og vel það. Niðurtalningin klikkaði eitthvað svona undir lokin en hátíðin gekk í garð þrátt fyrir það. Ég hafði bara soldið mikið að gera fyrir jólin,þó við hefðum verið búin að flest öllu. Við vorum búin að kaupa alla pakka, áttum eftir að fara í ákveðna ríkisverslun og kaupa meðlæti með steikinni svo að annirnar voru ekki heima við. Ég settist varla niður síðustu vinnudagana á þessu ári, verið að bíða eftir niðurstöðum út um allt hús. Og svo tók ég auðvitað hressilega á því í ræktinni þess á milli og uppskar eftir því. Ég ber víst Biggest looser, missti 10,7 kg á 12 vikum og get ómögulega sagt að ég sakni þeirra. Fataskápurinn minn er á leið í endurvinnslu því flest allar buxur eru víðar og pokalegar ( ekki lekkert ). Og mér finnst það bara ekkert leiðinlegt ; )
En víkjum nú aftur að jólunum. Þið ættuð að sjá jólasnjóinn sem að fellur í augnablikinu hérna fyrir utan gluggann hjá mér. Hann hefði mátt falla í fyrradag því þá var hávaðarok og rigning. Eins og haustlægð væri að ganga yfir landið. Ekkert jólalegt við það. Eníveis, yndislegt veður í dag. Við vorum með tengdafjölskylduna í mat, alls 9 manns. Við keyptum hagkaups hamborgarhrygginn í ár og ég kem sko til með að gera það aftur og aftur. Hann var geðveikur og munar auðvitað að þurfa ekki að sjóða hann, bara elda í ofninum. Diskarnir voru sleiktir hérna, meðlætið kláraðist líka svo að munnar voru sko mettir og vel það. Við vorum nú með súpu just in case í forrétt og svo var ítalskur ís ( súkkulaði, mintu og vanillu ) í eftirrétt með ferskum ávöxtum. Algjört nammi namm. Borðhaldið tók góðan tíma og krakkarnir voru svona við það að tapa sér af spenningi. Pakkarnir voru líka út um alla stofu, ekki séns að koma því öllu undir tréð. Kristín fékk það hlutverk að skríða undir tréð og ná í pakka og það byrjaði nú vel, hún náði í þá pakka sem hún vissi að hún ætti sjálf og vakti sko ekki mikla lukku viðstaddra. Stína systir hans Gumma var komin með skeifu niður á bringu þegar hún loksins fékk pakka. Þá léttist aðeins brúnin á henni. Ég verð nú að nota tækifærið og þakka kærlega fyrir mig og börnin mín. Allir mjög sáttir. Nema kannski Þorvarður í dag þegar hann er búinn að fá pakkann frá pabba sínum ( úlpa, buxur og peysa, hann vill ekki mjúka pakka þessi elska ). Það hefur væntanlega sigið á honum brúnin þegar hann opnaði hann.
Í gær kíktum við svo í heimsókn til afa og ömmu hans Gumma. Þar var boðið upp á kakó og kökur og ég verð nú að játa að lystin var nær engin. Mig langar bara í ferska ávexti núna :s Eftir innlitið í Hvassaleitið fórum við upp í kirkjugarð þar sem ég setti greinar og kerti á leiðin hjá mömmu og Jónatani blessuðum. Yndislegt að koma í garðinn á þessum tíma árs, allt upplýst og skreytt. Gott fyrir andlegu hliðina. Eftir það kíktum við aðeins í heimsókn til pabba og Distu og Mollý. Við vorum nú ásökuð um að hafa dottið á hausinn þegar við útbjuggum körfuna til þeirra en allt sem í henni var kemur að góðum notum. Svo það er nú allt í lagi. Svo hélt ég að rólegt kvöld heima við biði mín en nei, nei. Sissa og Bjarni hringdu og buðu okkur í mat svo að ég púðraði á mér nefið, Gummi skipti um bol og svo lögðum við í hann. Á borðum var hamborgarhryggur og ég get nú sagt núna að mér er sko slétt sama þó ég snæði hann ekki fyrr en eftir ár.Þetta er orðið gott í bili. En hann er nú alltaf svo góður. Svo sátum við og spjölluðum fram eftir kvöldi og stelpurnar voru uppi að leika sér með Sindra og seinna með Alexöndru. Klukkan var orðin eitt þegar við héldum heim á leið. Og ég lagðist upp í rúm og vissi ekki af mér fyrr en um 11 í morgun. Yndislegt að geta sofið svona vel út.
Svo er jólaball í dag hjá móðurfjölskyldunni hans Gumma. Fyrst að við erum með stelpurnar heima erum við tilneydd að mæta ( höfum sloppið síðustu 2 ár ). Þetta verður stuð, er einmitt að hlaða batteríin í myndavélina svo ég geti nú skráð þetta allt saman. Kristín kemur til með að hitta nokkrar heiðbleikar á svipuðu stigi og hún sjálf. Við komum nú til með að finna okkur bara gott sæti og fylgjast með úr fjarlægð. Það er nú alltaf skynsamlegt á svona mannamótum.
Og svo er bara vika eftir af fríinu mínu. Yndislegt. Ég ætla ekki að mæta fyrr en 3ja janúar aftur, taka mér gott jólafrí og hlaða batteríin. Dvel meira og minna í nýju náttfötunum sem að Gummi gaf mér. Habba habba ; )
Jæja, farin að fá mér ávaxtakokteil. cya
c",)
mánudagur, desember 26, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli