Við ákváðum að skella okkur í stuttan bíltúr í gær að Seljalandsfossi undir Eyjafjöllum því þar var víst blíðan meiri og betri en í bænum, ótrúlegt en satt. Sá stutti bíltúr entist í heila 8 klst því að við ákváðum aðeins að kíkja út fyrir eðlilega vegi og fara á staði sem hvorugt okkar mundi eftir að hafa farið á. Fyrst fórum við aðeins í gegnum Fljótshlíðina og kíktum á staðinn þar sem síðasta ættarmót var haldið á en við mættum ekki vegna brúðkaups Gillu og Stefáns. Jú jú, ágætis staður en að rukka 9000 kjell fyrir þessa kofa var auðvitað glæpur út af fyrir sig. Við stoppuðum minningarlundi um Guðmund ( eða Þorstein) og fengum okkur aðeins að borða. Kristín var reyndar of upptekin af því að skoða umhverfið svo hún gleymdi því alveg að borða. Svo héldum við sem leið lá að Seljalandsfossi þar sem ég rifjaði upp gamla, góða tíma frá því ég var lítil á leið í útilegu með mömmu og pabba því við stoppuðum alltaf þarna og áðum yfir eina nótt. Góðar minningar það ;)
Svo þegar við vorum að renna í bæinn datt okkur í hug að kíkja aðeins í Galtalæk því við höfðum aldrei komið þangað. Og í raun hafði ég aldrei komist nær Heklu en ég gerði í gær. Fínn spotti þarna upp eftir og augljóslega mjög gott að vera með börn þarna. Þó að það sé nú ekki planið um næstu helgi að leggjast þar út með öllum hinum. Þar sem við vorum svo nálægt Búrfelli og þ.a.l. nálægt virkjun þá fannst mér alla veganna skynsamlegt að keyra aðeins upp fyrir Galtalæk því þar hlyti að vera hægt að fara yfir Þjórsá á brú og komast niður í Þjórsárdalinn. Við keyrðum og keyrðum án þess að sjá nein merki um brú og vorum komin langleiðina upp á Sprengisand þegar Gummi ákvað að þetta væri orðið gott og við skyldum snúa við. En ég hafði það svo sterkt á tilfinningunni að brúin væri skammt frá svo við héldum aðeins áfram og viti menn, brúin var þarna og allt í einu vorum við komin á þetta fína malbik og laus við mölina. Yndislegt.
Við kíktum aðeins við á Þjóðveldisbæinn við Stöng í Þjórsárdal og þó að það væri búið að loka fengum við leiðsögn um svæðið því það mætti okkur voðalega fallegur svartur og hvítur fress sem að rölti með okkur sem leið lá kringum bæinn. Hann var voðalega hændur að okkur og leyfði Kristínu að halda á sér en það leyfa ekki margir kettir get ég sagt ykkur.
Eftir skoðunina keyrðum við sem leið lá í gegnum Laugavatn, yfir Lyngdalsheiðina og heim í gegnum Þingvelli. Og þetta tók aðeins 8 klst :s og Kristín sofnaði ekkert á leiðinni. Hún sofnaði ekki fyrr en að ganga 1 í nótt, aldeilis orkubúnt. Svo vaknaði hún eldhress í morgun um 10 og er farin að leika sér við Yrsu Björt, uppáhaldsvinkonu sína í músó.
Við verðum væntanlega heima í dag enda er veðurspáin best hérna megin á landinu. En á "næstum því hálendisrúnt" okkar í gær þá kviknaði hugmynd um að keyra Kjalarveginn yfir á norðurlandið. En það verður ekki gert nema það sé meira og betra veður þar. Svo ég er barasta farin út á pall að bæta við freknum ;)
c",)
þriðjudagur, júlí 26, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli