þriðjudagur, janúar 18, 2005

ehemm

kewl að blogga með mánaðar millibili. Það er nú ekki eins og ekkert hafi gerst í millitíðinni svo ég held að það megi skella skuldinni á pjúra leti.

Jólin eru liðin og voru þau ljúfustu í mörg ár. Við héldum þau með foreldrum Gumma í mosó = fórum með troðfullan, þungan bíl fullan af pökkum og börnum á aðfangadag í mosfellsbæinn. Þau voru bara að tapa sér meðan við vorum að borða, ég og Gummi gerðum í því að teygja lopann til að gera þau enn brjálaðri en að lokum þá komust þau í pakkahauginn undir jólatrénu. Herlegheitin tóku alveg korter enda er bara ein ástæða fyrir því. Alltof mikið af pökkum. Annars hefði þetta tekið miklu styttri tíma. Það tók mig líka nokkra daga að finna út úr hvað hver fékk frá hverjum. En þetta skilaði sér allt saman. Þetta voru dótajólin miklu hjá okkur öllum. Þorvarður fékk fjarstýrðan bíl ( þetta er sko það sem ég hef beðið eftir að fá í mörg ár) og auðvitað margt annað, Þórunn Anna fékk örkina hans nóa í pleimó ( ég vissi það !! ) og Kristín Fríða drukknaði í pony- og barbie dóti og ljómaði enda allt saman bleikt.
Ég fékk svo mikið af pökkum, ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum.

Gummi gaf mér flugmiða með Flugleiðum = búin að bóka mig í flug til ams 10. feb og er sem sagt að fara að hitta Siggu mína eftir 23 daga :) jibbí jei...

Pabbi og Dista gáfu okkur fallega silfurskál og kertastjaka og himnesk sængurföt

Tengdó gáfu okkur diska sem að við vorum búin að finna okkur og gáfu okkur miklu meira en við bjuggumst við

Anna Jóna og Kristín ( systur Gumma ) gáfu okkur tertudisk og engla :)

Amma og afi Gumma gáfu okkur nammikörfu

Kári gaf mér annan flugmiða með express, bíð aðeins með að nota hann á meðan ég held í veika von um að þeir taki út nokkrar sætaraðir til að við komumst almennilega fyrir með lappirnar

Gilla og Stefán gáfu okkur fallegan dúk á nýja borðstofuborðið í nýju íbúðinni okkar

Kristín bjó til kertastjaka handa okkur í Sælukoti

Gerður og Hemmi sendu okkur ost og nammigott og svo heimagerðan ostabakka úr rauðvínsflösku ( gott að geta nýtt þær á einhvern máta... )

Nú er minnið farið að bresta ( svo langt síðan...hehehe ) en ég held að ég hafi náð að impra á því helsta...

Nú, ég og Gummi vorum eiginlega búin að ákveða að gefa hvort öðru ekkert vegna íbúðakaupa en það varð nú ekki svo ( sbr. eitt stykki flugmiði ). Ég lét brenna fyrir hann Góða dátann Svejk á geisladiska og hann ljómaði í framan og þetta hefur verið í nonstop spilun í bílnum síðan um jólin...og svo gaf ég honum líka 3ju myndina um LOTR. Svo að við fórum aðeins á bakvið orðin en það var bara allt í lagi, svona einu sinni :)

Úff hvað þetta blogg verður laaaaaaaaannnnnnnnnngggggggggggt :)

Auðvitað var svo mikill hittingur yfir jólin, aðallega Gumma megin. Við vorum komin af stað í kaffi og kökur á jóladag um kaffileitið til ömmu og afa hans. Svo um kvöldið hittum við Gillu og Stefán og börn heima hjá pabba og Distu og fengum okkur meira að borða. Stóðum okkur mjög vel. Svo vel að Gummi varð hálfslappur daginn eftir og fékk magakveisu = misstum af jólaballinu í móðurfjölskyldu hans.

Á milli jóla og nýárs var lítið um að vera, Gummi reyndi að fara í vinnuna en það gekk ekkert alltof vel. Það var nefnilega verið að flytja skrifstofurnar á þessum tíma svo að einn daginn kom hann að tómri skrifstofu og dótið hans á flakki, annan daginn var hann ekki kominn með skrifborð og þriðja daginn þá var hann ekki búinn að fá helminginn af dótinu sínu. Svo að þetta varð allt saman minna en það átti að verða. Sem var mjög gott því þá kom hann bara fyrr í bólið til mín ( sem var í fríi notabene ). Svo kom gamlárskvöld. Gummi var reyndar á skralli kvöldið áður = myglaður...en það var allt í lagi. Reyndar byrjaði dagurinn snemma í fimmtugsafmæli frænku hans hennar Ingibjargar Sólrúnar. Voðalega gaman en mikið talað um hvaða hávaxna fólk væri þarna...hmmmmmm hver ætli það hafi verið ?? ;) Svo fórum við heim í millitíðinni og náðum í stelpurnar og keyrðum upp eftir. Það leið ekkert á löngu fyrr en við vorum komin með glas í hönd og skemmtum okkur bara ágætlega. Hlógum mikið að skaupinu og náðum að halda Kristínu vakandi fram yfir miðnættið. Það var rosalega flott flugeldasýning í mosó til minningar um Ragga sem var myrtur á Áslák ( Dráplák), einum af pöbbnum í mosó ( já þeir eru sko 2 ). Allur bærinn stóð og horfði á og enginn sprengdi á meðan á þessu stóð. Þess vegna var flugeldasýning íbúanna sjálfra hálfhjákátleg miðað við sýninguna. En hún var rosalega flott. Seinna um nóttina fengum við okkur göngutúr heim til frænku Gumma því að þar sátu vinir að sumbli. Reyndar var Nína frænka hans farin að sofa þegar við skiluðum okkur en Snorri var enn að. Í stuttu máli ,eftir umræður um öll farartæki sem nokkrum dettur í hug ( flugvélar, flutningaskip, farþegaskip og flutningabíla ) þá gat ég dregið Gumma heim og þá var klukkan farin að ganga 8 um morgun. Ég var voðalega hress og ekkert mygluð ( NOT )

Sem betur fer var svo frídagur eftir áramótin, hefði engan veginn meikað það að mæta í vinnu 2. janúar...ég ætla að hafa það í huga næst að það er eiginlega möst að eiga einn frídag eftir áramótin.

Svo er janúar búinn að líða ansi fljótt, miklu fljótar en ég þorði að vona enda er ég að bíða eftir því að komast af landinu og fá svo íbúðina okkar. Við erum búin að rúnta um útsölur og eyða nokkrum krónum í eitt og annað sem að við getum geymt í kjallaranum hjá tengdó ( sem betur fer ) Og í dag, nákvæmlega eru bara 8 vikur þangað til ég stend með sparsl og málningu í hönd að gera íbúðina okkar flottari en hún er fyrir :) og ég get varla beðið en þetta er búið að vera svo fljótt að líða hingað til svo að þessi dagur rennur upp fyrr en varir.

Er þetta ekki orðið alveg ágætt í bili ?? Ég verð að fara að troðast eitthvað í tölvuna hérna heima við á milli barnanna svo ég geti bloggað með aðeins styttra bili. Ekki að það séu margir um lesninguna...hvað veit ég ??

c",)

Engin ummæli: