ég komst heilu á höldnu frá helginni annasömu. Hún byrjaði auðvitað snemma á föstudeginum á því að við fórum í stúdentaútskrift hjá Hrafnkeli, frænda hans Gumma. Eftir að hafa velt því fyrir mér lengi vel hvað við ættum að gefa honum þá gekk ég inn í dótabúð og keypti svona læknatösku því hann stefnir á að reyna að komast þar inn í haust. Ég nefnilega þoli ekki að fara og gefa pening í umslagi. En hann fékk nú samt peninginn en svona líka flottan pakka með. Eftir þetta partý fórum við aðeins heim til Sissu og Bjarna því að Gulda varð 85 ára gömul á föstudaginn (frænka hennar Sissu sem ég hef þekkt í einhver 25 ár).
Svo á laugardaginn þá byrjaði dagurinn snemma því að við keyrðum alla leið á Hellissand til að vera viðstödd í jarðarför mágkonu ömmu minnar sem að dó í síðustu viku. Veðrið var eins og best verður á kosið og Snæfellsjökull gnæfði yfir hvar sem við vorum. Samt var vindurinn kaldur svo að veðrið var best einhvers staðar í skjóli. Athöfnin var falleg í alla staði og gekk vel. Eftir það var svo erfidrykkja eins og alltaf í sveitinni. Við stoppuðum nú stutt þar því að ég þurfti að vera þá komin í bæinn innan 2ja tíma. Ég heilsaði upp á þau sem ég þekkti þarna og svo brunuðum við aftur í bæinn. Og Gummi missti ekki bílprófið svo við getum haldið báðum bílunum...
Mér tókst svo að vera komin í bekkjarpartýið rétt rúmlega 6 og kalla það nú bara gott að hafa náð því. Þá gat ég svona farið að slappa af í góðra vina hópi. Við komumst eiginlega að því að við höfum eiginlega ekkert breyst á þessum 10 árum, fjölskyldurnar hafa kannski stækkað en við erum alveg eins í útliti og innræti eins og í gömlu góðu. Reyndar hafa umræðuefnin breyst eitthvað því að lítið annað komst að en brjóstagjafir og bleijuskipti svona framan af kvöldinu. Það breyttist aðeins með auknu alkóhólinnihaldi í blóðinu...Það var bara lygnt í sjóinn út í Viðey svo að siglingin var bara notaleg. Við áttum nú að fá púns við varðeld en þar sem það er orðið svo bjart úti þá fengum við bara viðeyjargums ( þetta kölluðu þau bláa glundrið sem við fengum) í sólinni. Ég hló eiginlega bara fyrstu mínúturnar því að þetta var eitthvað svo súrt.Við stelpurnar sátum svo bara saman í borðhaldinu og drukkum vel og mikið og reyndum að láta ekki borðhaldið skemma fyrir okkur skemmtuninni. Hlaðborðið var æðislegt, aðallega meðlætið. Ji dúdda mía, ég hef sko óskað þess alla vikuna að hafa það á borðunum heima hjá mér. Kjötið var síðra en samt ekkert slæmt. Verst var að fá engan eftirmat, okkur dreymdi um súkkulaðistykki og auðvitað engin sjoppa í nágrenninu. Svo tóku við skemmtiatriði sem voru nú dáldið fábreytt en bara fyndin. Við fengum að sjá fréttaskot frá deginum sem við útskrifuðumst á ( enda var Ingólfur Bjarni á stöð 2 veislustjóri og hæg heimatökin hjá honum... ) og það er nú bara hægt að segja að tískan fyrir 10 árum síðan var doldið mikið litlaus. Við sáum líka vídeó af okkur þar sem við vorum að klára stúdentsprófin. Og þar var hárið á mér bara eldrautt og rosalega sítt. Ég hélt nú að á þeim tíma hefði það verið aftur orðið músalitt en svo var ekki. Lítið var um önnur skemmtiatriði svo að við drukkum bara meira og dönsuðum.
Á miðnætti fórum við nokkur í land með ferjunni og ég, Halla Dröfn og Darri ákváðum að fara í hjúkkupartý. Darri stakk reyndar af fljótlega og ég skildi hann svo sem alveg. En ég þraukaði og við vorum svo komnar í bæinn um hálftvö leitið....og þá lá leiðin á NASA á ball með í svörtum fötum. Og það var sko bara gaman. Við vorum orðin svo mörg þarna úr MR að við bara áttum staðinn og í hvert sinn sem Jónsi skaut á 10 ára MR ingana þá fékk hann það margfalt til baka í fagnaðarlátum. Ég hitti meira að segja nokkra úr 74 árganginum úr MR og dansaði vel og mikið. Gummi var líka í bænum og var byrjaður að hringja í mig ansi oft svo ég dreif mig bara heim með honum um 4 leitið þegar hann var kominn með nóg. En ég frétti á mánudeginum að það var sko eftirpartý eftir NASA svo ég hefði getað verið á djamminu langt fram undir morgun. En daginn eftir var ég mjög fegin að hafa farið tiltölulega snemma heim. Þynnka ?? Já, svona doldil en ég þraukaði það...
c",)
sunnudagur, júní 05, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli