þá er enn ein helgin byrjuð og hvað verður gert ? meira um það síðar...
Annars er vikan búin að vera ljúf, ég tel bara niður dagana þangað til ég fer til Amsterdam að hitta Siggu mína. Það verður æðislegt að komast aðeins frá og í aðeins meiri hita en hérna á klakanum. Annars er yfir litlu að kvarta, veðrið er að verða skaplegt.
Ég fór með Þorvarð til augnlæknis á miðvikudaginn og viti menn, hann er kominn í -3 á báðum og þurfti að fá göngugleraugu ( sem hann er þá alltaf með ). Það tók hann ekki langan tíma að velja sér brillur sem hann fékk svo í gær og hann er barasta farinn að sjá frá sér og var mjög hissa á því að sjá að loftið í íbúðinni okkar er hraunað en ekki slétt eins og hann hélt. Þetta komment frá honum sannaði fyrir mér að hann sá ekki baun. Núna er þetta sem sagt allt annað og hann brosir bara út í annað yfir þessu öllu saman.
Þórunn Anna er lögst út. Hún skellti sér til Margrétar í Hafnarfirði á þriðjudaginn og svo hringdi hún í mig í gær og þá var hún komin til Einars frænda og hundanna hans. Hvenær hún skilar sér heim er óljóst, það er svo sem í lagi á meðan hún er ekki að hringja í mig og biðja mig um að fá hund inn á heimilið...
Kristín er bara alltaf sama eðalblondínan, alveg yndisleg ( oftast nær ) í umgengni. Það er ekki nema þegar maður vekur hana vitlaust að hún verður alveg kolill og þá forða ég mér bara. Annars svífur hún bara um á bleiku skýi, þessi elska.
Jæja, best að hleypa Þorvarði aðeins á netið áður en hann skríður undir sæng...
c",)
föstudagur, júní 10, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli