Þá er þessi helgi búin og innan við 2 vikur til jóla. Ég fór með pakka á pósthúsið í gær sem eiga að rata til útlanda og flest öll jólakort svo það er alla veganna frá. Og mér tókst að kaupa nokkrar jólagjafir um helgina, enda eins gott því ég fór 2ar í Kringluna ( eins og það er nú yndislegt á þessum tíma árs ). Svo að what to do listinn styttist óðfluga ; )
Við fórum svo að sjá frostrósirnar á laugardagskvöldið. Það var mjög fínt en ég hefði viljað upplifa þær miklu frekar í kirkju, Laugardalshöllin er ekki fyrir svona tónleika. Þetta kemur allt í lagi út á einhverjum rokktónleikum en ekki svona þar sem að raddirnar eiga að njóta sín, ekki fjara út í búningsklefum sveittra íþróttasokka. En þetta var upplifun, ég er ekkert minna hrifin af þeim en ég var áður og dauðlangar í disk með þeim. Jólasveinn, viltu gefa mér í skóinn á aðfangadag ???
Og svo kom auðvitað Stekkjastaur til byggða í nótt. Kristín fór varla úr náttfötunum í gær því hún ætlaði sko að fara snemma að sofa. Hún skreið upp í fyrir 9 og sofnaði fljótlega. En hún vaknaði líka fljótlega aftur ( svo þetta var ekki svo sniðugt ) því henni fannst svo leiðinlegt að bíða eftir jólasveininum. Hún er ekki alveg að sjá það að maður á bara að vakna á morgnana, ekkert most að hanga eftir honum í von og óvon um að sjá hann. Svo þegar hún vaknaði í morgun var hún alsæl því að Stekkjastaur setti hálsmen og hring í skóinn hjá henni. Svo voru miklar spekúleringar um þetta skóvesen yfir morgunmatnum og svo kom spurningin “ af hverju veist þú og Gummi svona mikið um jólasveininn ?? “ Svo kannski leynist einhver annar háralitur undir ljósa englahárinu ( verður kannski ljósrauðhærð eins og ég á hennar aldri ).
Ég heyrði aðeins í lækninum mínum í síðustu viku og það er ekkert hægt að útskýra hvað kveikti á drop dead viðbragðinu mínu. Hann giskar á að ég hafi verið jafnvel með væga flensu sem hafi getað kveikt á þessu. Það kemur í ljós bara hvort þetta gerist aftur ( jei, hvað það verður æðislegt ), alla veganna fann ég fyrir nettri drop dead tilfinnningu á laugardaginn og var snögg að setjast niður. Kannski var það ilmvatnsfnykurinn í búðunum sem startaði mér þann daginn. Hver veit…
c”,)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli