föstudagur, október 07, 2005

þetta selur...

Ég fékk senda þessa lýsingu á fasteign af mbl.is
mæli með því að sá sem ætli að selja eign með þessu orðalagi finni sér aðra vinnu hið snarasta ;)

Til sölu jörðin Fjall í Skagafirði sem áður var var í Seyluhreppi og þar áður í Staðarhreppi. Jörðin er talin vera um 998 ha að stærð. Ræktuð tún samkvæmt fasteignamati 27 ha. Á jörðinni er 93 fm íbúðarhús, 10 bása hesthús (fjórar 2ja hesta stíur, 2 stórir salir- annar með jötum), hlaða og fjárhús fyrir 25 kindur. Seljandi hefur m.a. upplýst eftirfarandi: Afleggjarinn að jörðinni er 2,4 km. Frá Hvalfjarðargöngunum að jörðinni eru 250 km; til Akureyrar 105 km; í áfengisverslunina á Sauðárkrók eru 31,7 km. Í ríkasta kaupfélag og ódýrustu matvælaverslun á Íslandi til jafnaðar eru 30,7 km. Svo í einungis 14 km fjarlægð eru haldnir AA fundir á Löngumýri. Til sóknarkirkju að Víðimýri eru um 7 km (kirkjulegar athafnir moldarlykt og prestlegar hugganir, ásamt fyrirgefningu synda ef vel er beðið). Til Agnars og Döllu á Miklabæ eru 20 km (mjög skemmtilegt og gott fólk) 9 km er svo í K.S. Varmahlíð sem er opið næstum allan sólarhringinn og þar fæst allt frá bensíni að bjór ásamt góðu viðmóti allra starfsmanna. Síðast en ekki síst skagfirsk fegurð í allar áttir. Norðurhluti jarðarinnar er mjög góður til útivistar og má þar nefna: Fjallfoss og gljúfrin ásamt jökulhólum með skjóli úr öllum áttum. Fossaröð í Skarðsánni, í Reykjarskarði og mjög mikla friðsemd að finna. Fylgt geta 10 kindur, 15 hryssur ásamt einhverju af gömlum vélarkosti. Nánari upplýsingar á skrifstofu FM...

need I say more ?

c",)

Engin ummæli: