þá er enn ein ljúfa helgin að verða búin. Hún hefur reyndar verið extra löng því að Kristín var heima á fimmtudag og föstudag með hita og hæsi. En hún er alveg eiturhress núna, röddin að lagast og orkan alltof mikil.
Í gær áttum við 1 árs trúlofunarafmæli. Við gerðum nú ekki mikið í tilefni þess, annað en að fara á árshátíð Samskipa, í Gullhamra í Grafarholtinu. Djammið byrjaði reyndar snemma, okkur var boðið í partý í Garðabæinn þar sem við hittum þau sem við sátum svo með um kvöldið. Ég var í mínu fínasta pússi og Gummi ekki síðri í nýrri skyrtu og bindi. Það var umtalað hvað við vorum glæsileg, ein skaut á okkur að við værum eins og konungborin að horfa yfir þegnana. Við hlógum bara að þessu.
Veislustjórinn var Gísli Einarsson ( út og suður ) og stóð sig eins og hetja. Við hlógum okkur máttlaus yfir bröndurunum sem hann reytti af sér. Maturinn var æðislegur, humarsúpa, lambakjöt og súkkulaðikaka í eftirrétt. Hundur í óskilum kom og söng fyrir okkur sínar útgáfur af lögum, eins og Final Countdown ( Europe ) og eurovisionlagið sitt. Frábærir. Svo vatt Gummi sér upp á svið ásamt öðrum deildarstjórum í gervi, með yfirvaraskegg mikið. Ég sagði honum eftir á að hann skyldi sko aldrei fá sér slíka mottu. Þá myndi ég yfirgefa hann !!!
Að lokum þá dönsuðum við mikið við Sálina, alltaf jafn góðir. Ég var reyndar að drepast í fótunum eftir allan dansinn svo að ég skellti mér bara heim en Gummi fór í bæinn ásamt nokkrum orkuboltum og skilaði sér ekki heim fyrr en um 8 í morgun og hefur verið afskaplega hress í dag eða þess þá heldur. Hann hefur sofið meira og minna á meðan ég hef sinnt börnum og búi, meðal annars farið í kirkju með Þorvarði fermingardreng. Svo að þessi sunnudagur hefur verið ósköp eðlilegur og notalegur í nepjunni.
Svo er bara vinnudagur á morgun, Kristín orðin alltof hress til að vera heima. Gummi á afmæli á þriðjudaginn svo að ég verð víst að baka aðeins annað kvöld, við erum búin að bjóða foreldrum í kaffi á þriðjudagskvöldið. Alltaf gaman að hittast aðeins yfir góðum kökum og kaffi ;)
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli