til jóla ;) styttist í þetta.
Ef þið viljið komast í nettan jólafíling þá er hægt að hlusta á jólalögin á létt, væmið og viðbjóðslegt ( www.lett.is ), byrjar nú fullsnemma fyrir minn persónulega smekk...
Annars gengur vel með jólatrésteppið, tók mér pásu á laugardagskvöldið þegar ég stakk mig á nálinni við að kappmella ( komið gott það kvöldið ). Í staðinn lagðist ég í nettan 6itc fíling og horfði á 3 þætti úr 3. seríu. Yndislegt að geta leyft sér þetta svona af og til og inn á milli.
Svo var ég voðalega hugrökk í gær og skellti mér með börnin í sunnudagsbíltúr í Borgarnes í 2 ára afmæli hans Axels. Voðalega gaman, Gilla skellti á borðið veitingum sem hefðu vel átt heima í fermingarveislu, er að gæla við að hnupla henni í apríl á næsta ári...
Á heimleiðinni lentum við í ýmsum sýnishornum, blindbyl, rigningu, hagléli og sólskini, voðalega íslenskt ; )
Svo til að toppa góðan gærdag þá fékk ég símtal frá Gautaborg, elskan mín hún Þórunn Kristín búin að skila sér heim frá Nígeríu, nýgift og alsæl. Nú þarf hún bara að bíða eftir því að fá Andrew til sín, vonandi gengur það sem fyrst. Ég þarf að drífa í því að skoða myndirnar sem ég reyndi að taka af börnunum mínum um daginn og senda henni nokkrar. Og sjá hvort að þær séu nothæfar í jólakortin þetta árið. Efast um það en reyni mitt besta.
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli