öll sömul : )
Jæja, þá erum við flutt í mosó. Nú erum við búin að búa hérna í 8 daga.... Orðnir Múslingar af lífi og sál. Þetta er alveg hreint yndislegt, okkur líður alveg voðalega vel hérna. Við heyrum ekkert í nágrönnunum og þeir vonandi ekki í okkur. Þetta er bara eins og að vera í einbýli. Pallurinn á sko eftir að koma sér vel þegar fram líða stundir, það verður sko æðislegt að sitja þar í sumar í góða veðrinu og drekka í sig kvöldsólina. Og svo er náttúrulega dýrlegt að í ekki stærra bæjarfélagi séu 2 lágvöruverslanir og þar af ein opin til miðnættis. Svo að það þarf ekkert að vera að stressast í búðum eftir vinnu, bara skella sér í sveitina og versla þar. Það á sko eftir að koma sér vel...
Kristín Fríða er sko komin með sitt bleika herbergi. Þegar fyrsta umferðin af litnum var kominn á hélt ég að við hefðum keypt neonbleikan en hann skánar svona eftir því sem tíminn líður. Alla veganna er hún himinlifandi yfir þessu öllu saman. Þorvarður stakk af til pabba síns stuttu eftir að við fluttum svo að það er svo sem ekki komin mikil reynsla á það. Hann byrjar svo í skólanum á þriðjudaginn og þá förum við væntanlega að fá einhver viðbrögð hjá honum.
Þórunn Anna er líka stungin af. Hún skellti sér í sumarbústað með Margréti vinkonu sinni og kemur heim á morgun. Svo að það er frekar rólegt hérna heima við...
Við erum nú þegar búin að halda 1. innflutningspartýið þó að við séum bara búin að vera hérna í rétt rúma viku. Við ákváðum að kýla á þetta á föstudeginum langa = flöskudeginum langa. Mætingin var góð, fámennt en góðmennt. Hér var drukkið og etið til rúmlega 4 á laugardagsmorgninum og eftir að við tékkuðum á liðinu í gær þá komumst við að því að þetta var almennilegt því heilsan var frekar slæm hjá flestum...
Svo er sko næsta bjóð í dag, við fáum foreldra í mat til okkar seinni partinn og erum að fara að elda 2 læri ofan í liðið. Það er eins gott að við erum búin að kaupa nýtt borðstofuborð til að koma þeim öllum fyrir. Þetta verður voðalega gaman. Gott að geta boðið í mat og gert það almennilega. OG við erum sko ekki búin þessa páskana því að svo kemur fjölskyldan mín í kaffi og kökur á morgun. Nóg að gera á stóru heimili. Það er nú allt í lagi, við sofum svo vel hérna í sveitinni svo ég verð nú ekki þreytt við þessi bjóð : )
Jæja, best að fara að ná mér í smá bita af egginu áður en það klárast...
c",)
p.s. til hamingju með daginn mamma mín : )
sunnudagur, mars 27, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli