líka, búin að sjá hann. Alveg ágæt ræma, náttla bara gervileg og á ekkert að vera öðruvísi. Bara spurning hvenær spíder man 3 kemur...
Annars var ég að koma heim, við afrekuðum að fara hringinn á 3 dögum :s barnlaus og alles ;) lögðum af stað seinni partinn á sunnudeginum og ókum sem leið lá á Akureyri. Vorum snögg að því enda öll umferðin á leiðinni í bæinn, skemmtilegt að vera svona öðruvísi en aðrir. Keyrðum svo í Vaglaskóg þar sem við hittum Gillu, Stefán og þeirra börn. Það var voðalega skemmtilegt. Við komum tjaldinu upp og settumst svo niður og fögnuðum 7 ára samveruafmæli þeirra með smá hjálp frá Corona Cerveza. Mjög fínt. Fórum í svefnpokana ekkert svo voðalega seint, eitthvað um miðnætti. Þegar við vöknuðum um morguninn var hitinn óbærilegur í tjaldinu enda skein sólin mjög bjart fyrir utan sem skilaði sér í hitastigi þarna einhvers staðar um 20 gráður. Við vorum nú ekki búin að vera lengi úti við þegar ég var farin að roðna allískyggilega á bringunni. Ég jóðlaði nú samt á mig vörn en það dugði ekki til. Ég ber enn vott um roðann en þetta er nú allt að koma. Er bara komin með þennan fína, hraustlega lit...trúið því bara. Auðvitað tolldum við ekki lengi við í blíðunni enda var spáin niður á við þarna á svæðinu. Svo að við ákváðum að keyra austur og fórum í Hallormstaðaskóg við Egilsstaði. Þá áttuðum við okkur reyndar á því að þetta var að verða að svona skógarþema... frekar fyndið. Þar var blíðan ekkert minni, reyndar var svona rykmistur frá hálendinu aðeins fyrir sólinni og það var nú ekki búið. Eftir að við höfðum kannað menninguna í kaupfélaginu á Héraði og búin að gæða okkur á pizzu frá '67 þá fórum við að tjalda ( enn einu sinni ). NB tjaldið var svona hústjald frá 70 og eitthvað með rósagluggatjöldum og alles. Sem betur fer hafði minn kæri tjaldað því nokkrum sinnum, annars hefðum við sofið úti við allan tímann. Náðum að tjalda í smá skjóli frá sólinni svo að ég gat borið á mig after sun af miklum móð. Það var nú aðeins kaldara þarna en fyrir norðan og mínum kæra var bara kalt um nóttina. En þegar við vöknuðum um morguninn ( í gær ) þá var sko komin sól og heiður himin en samt ekkert svakalega heitt, eitthvað um 16 gráður...svona verður maður þegar maður er í góðu veðri, allt fyrir neðan 20 er prump !!! Við ákváðum eftir að hafa fengið okkur morgunmat að þræða suðurfirðina rólega og skoða okkur vel um. Svo ætluðum við að hvíla okkur yfir nótt einhvers staðar á leiðinni. Það breyttist aðeins. Við þræddum firðina í góðu veðri og fengum okkur sveittan hammara á Djúpavogi ásamt mjög svo sjúskuðum manni í stuttbuxum og með gulan sólhatt sem að var á krúsinu í leigubíl...mí dónt nó háv hí kúd dú ðat !! en allt er hægt svo sem. Þegar við vorum svo búin að fara skriðurnar, þar sem meðal annars í einni þeirra var nýbúið að hrynja aðeins á veginn þá komumst við á Hornafjörð. Gáfum bílnum aðeins að drekka og ákváðum svo að halda bara áfram, vorum ekki alveg komin með nóg af keyrslunni...hehehe. Spáin var líka eitthvað lélég í dag, meira rok á söndunum svo að við höfðum alveg afsökun. Þarna fyrir austan var ekkert skyggni, slíkt var mistrið ofan af hálendinu. Þegar við keyrðum framhjá Vatnajökli, sem er nú ekkert lítill...þá sáum við hann eiginlega aldrei heldur þurftum að ímynda okkur að hann væri þarna einhvers staðar í rykinu, rykfallinn...
Í stuttu máli vorum við komin í bæinn einhvern tímann um 11 í gær og það var svo ljúft, ég fór næstum því í skónum í sturtu. Það var svo ljúft, fengum okkur svo aðeins að eta og skriðum svo í ból. Er ég búin að segja hvað ég elska mikið rúmið mitt ? Held að það sé stutt síðan en ég bara laggó, elska rúmið mitt og manninn sem liggur þar með mér ;)
Þá erum við búin að fara hringinn. Eftir á sagði minn kæri að hann fengi svona fiðring einu sinni á sumrin og þá dugði honum að fara í svona 2 nætur í tjald og þá væri hann læknaður. Sem sagt næst þegar hann er illa þjáður af tjaldfiðring þá fær hann að fara einn á rúntinn, hehehehe ;)
Svo náðum við í stelpurnar í morgun og Kristín var nú fegin að sjá okkur, þessi elska. Alveg bleik eins og alltaf og bara langsætust. Það var soldið skrýtið að vera svona alveg barnlaus, verður örugglega langt þangað til að það gerist aftur. Gott að vera komnar með þær heim, þessar elskur :)
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli