ber minn hring ;)
Ég lét verða af því um helgina að biðja mér manns. Minn kæri er sá er um ræðir. Ég var búin að ákveða fyrir rúmum mánuði að ræna honum á föstudegi eftir vinnu og fara með hann út á land í sumarbústað og það er einmitt það sem ég gerði á föstudaginn. Minn maður var kominn með öllara í hönd rúmlega hálffimm eftir erfiðan vinnudag og leiddist það ekki. Ég var þá búin að kaupa í matinn og kíkja við í ákveðinni ríkisverslun og var hreinlega með fullt skottið af alls kyns góðgæti. Ég var líka búin að afreka að fara í klippingu þar sem Alli ákvað að gera mig að svona semiljósku, er með svona dökkt inn á milli...voðalega flott ;) allt um það !! Við keyrðum sem leið lá í Hvalfjörðinn, nánar tiltekið að Bjarteyjarsandi. Þar er decode með alveg hreint æðislegan bústað til leigu fyrir okkur vinnualkana. Vel nýttur, by the way. Við vorum búin að fá okkur að borða og hann vissi alveg að ég ætlaði að gefa honum gjöf um kvöldið þó hann ætti ekki afmæli fyrr en á mánudeginum. Við gátum ekki beðið lengur en til 8 og þá vatt ég mér á fætur, náði í hringana og spurði hann hvort hann vildi ganga að eiga mig ? og auðvitað svaraði hann játandi. Hvað annað !!! ( ég er nú svo yndisleg sko ;) ) Svo skáluðum við og áttum bara svo notalega kvöldstund saman.
Á laugardeginum komu svo tengdó og systur hans og pabbi mætti svo í kvöldmat. Við grilluðum læri og vorum með allt viðeigandi meðlæti með. Svo fengum við okkur aðeins í tánna ( svona upp að hné ) og vorum komin í pottinn frekar snemma og entumst þar í 3 tíma þar sem tengdamamma var dugleg að bera í okkur drykki. Eftir alla þessa pottveru vorum við yngra liðið frekar syfjað en tengdó héldu aðeins áfram. Pabbi hafði nú bara skellt sér í bæinn fyrr um kvöldið enda var spáin fyrir sunnudeginum ekkert sérlega spennandi. Sem reyndin varð því að það var vitlaust rok í hvalfirðinum þegar við fórum á fætur.
Í heildina var þetta yndisleg helgi, ég var alla veganna úthvíld og hafði ekki mætt í vinnu og var þetta fyrsta helgin í LANGAN tíma sem það hafði ekki gerst.
Nú spásserum við um allt og sýnum hringana okkar. Þeir eru æðislegir, þó ég segi sjálf frá. Handsmíðaðir og ekkert annað par til á landinu sem er eins . Við erum bara í skýjunum og enn meira ástfangin en áður þó ég héldi nú að það væri ekki hægt.
Svo er bara puðið tekið við. Ég er svona að ákveða hvorn daginn ég ætla að vinna um helgina. Báðir koma mjög illa til greina því ég lét tilleiðast í dag og skráði mig í óvissuferð á föstudaginn með vinnunni. Farið verður af stað um 3 og komið aftur í bæinn um miðnætti svo að ástandið á mér verður kannski ekkert spes á laugardeginum. Nema hvað að á laugardagskvöldið erum við boðin í þrítugsafmæli í mosó svo að sunnudagurinn verður líklega miklu verri heilsulega séð. Hér með held ég að það sé skást að klára þetta af á laugardeginum. Það er nú seinni tíma problem.
Jæja, er farin að gefa liðinu mínu að eta...
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli