sunnudagur, apríl 30, 2006

JEI...

fyrsta fermingin að baki. Dagurinn hefur bara verið yndislegur og ég er bara búin á því. Eðlilegt miðað við hvað hefur gengið á undanfarið. Þetta gekk allt glimrandi vel, Þorvarður stóð sig eins og hetja í kirkjunni í morgun, reyndar hélt ég að það væri að líða yfir hann á tímabili í kirkjunni, hann sat og roðnaði og hvítnaði í framan á víxl en þetta hafðist allt saman. Hann tók við oblátunni og messuvíninu eins og hann hefði gert það mörgum sinnum áður, reyndar kom soldið skrýtinn svipur á hann þegar hann var búinn að kyngja sopanum. Kristín var soldið leið á athöfninni og stundi oft og mörgum sinnum að hún væri svoooooooooo svöng og svo þegar fluga birtist í glugganum varð hún svolítið óróleg og færði sig frá glugganum. Henni er ekkert sérlega vel við flugur af einhverjum ástæðum. Svo þegar athöfninni lauk og Þorvarður fermdur voru nokkrar myndir teknar af honum og svo brunaði pabbi hans með hann í grasagarðinn þar sem fleiri myndir voru teknar af honum. Hann brosti ekkert fyrr en hann var spurður hvað hann héldi að hann fengi í gjafir og þá brosti Þorvarður sínu blíðasta. Svo kom hann að lokum í salinn og hitti okkur þegar við vorum búin að koma kræsingunum fyrir. Fólk tíndist inn eitt af öðru og við týndum tölunni, 76 kvittuðu í gestabókina fyrir utan okkur í Hjallahlíðinni og eitthvað af föðurfólkinu. Svo við höfum verið eitthvað um 90 í heildina.
Það reyndist þrusuvel að hafa sjónvarp í einu horninu. Þar héngu allir krakkarnir og horfðu á imbann og laumuðust fram af og til að ná sér í nammi og rice krispies kökur. Veitingarnar létu á sjá og við þurftum ekki að bera mikið heim. Tæpa eina brauðtertu og nokkrar rúllur. Það var meira eftir af kökunum ( sem staðfestir að það er meira borðað af brauðmeti í svona veislum ) sem Guðni og co tóku með sér heim.
Svo brunuðum við hingað heim og tókum upp pakkana. Eða réttara sagt umslögin því Þorvarður fékk í heildina 3 pakka og þó nokkuð fleiri umslög. Í heildina fékk hann rúman 150.000 kjell, Moby dick, skrifborðsstól og úr. Hann á eftir að fá frá pabba sínum en það eru miklar líkur á að það verði utanlandsferð í sumar. Hann getur þá notað eitthvað smáræði af peningunum í gjaldeyri en restin fer inn á læsta bók fram til 18 ára aldurs.
Þorvarður er bara ánægður með daginn, hann var svo myndarlegur í teinóttu jakkafötunum sínum að margir höfðu orð á því hvað hann væri flottur. Ég er sjálf mjög fegin að þessu er lokið, ekkert nema góðar minningar sitja eftir þennan dag. Svo nú er bara ár í næstu fermingu. Það er nú gott að hafa fengið smá reynslu þetta árið, við erum eiginlega sammála um að kaupa veitingar í sal á næsta ári því að kostnaðurinn virðist vera mjög svipaður. Fyrir utan vinnuna sem ég hef lagt í allt stússið. En því var vel varið í góðan dag :)

Og já, btw...Til hamingju með afmælið í gær Fanney mín. Mikið langaði mig í þó nokkra kokteila með ykkur í gær en það bíður betri tíma ;) mojito-grillpartý í sumar, ekki spurning.

Jæja, er farin að kúra mér undir teppi undir einhverju leiðinlegu í imbanum.

c",)

5 ummæli:

Fanney sagði...

Takktakk skvís...já mojito grillpartý er hér með staðfest í votta viðurvist.
Gaman að þú skildir reka nefið inn í mýflugumynd í gær.

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ - obboslega ertu orðin fullorðin að vera búin að ferma ! Til hamingju með drenginn, hilsen

Nafnlaus sagði...

Ahh ég samgleðst þér, að vera búin í bili;) Hugsaði til þín í gær. En ertu að segja að þú hafir útbúið veitingar fyrir 90 manns?!! Pjúhh.
Hobbýhó.

Nafnlaus sagði...

Enn og aftur til hamingju með Þorvarð, og ég ætla að vona að hann hafi ekki meitt sig mikið þegar ég skellti einum blautum á hann?

Æi hann er æði!

Bogga sagði...

Takk takk, allar saman. Já, mojitopartý í sumar Fanney mín !!! Og já, djö er ég orðin gömul :s búin að ferma frumburðinn, þessa elsku. Algjör hetja, stóri kallinn minn ;) Hann slasaði sig ekki ýkja mikið eftir þrusukossinn frá Margréti, ég var að þurrka gloss og varalit af kinnunum á honum í gær eftir veisluna, hann tók þessu eins og herramaður og roðnaði bara til að fela allan varalitinn sem var búið að smella á hann ;)
Og já, húsmóðirin ég útbjó veitingar fyrir allan þennan fjölda. Við komumst samt að því þegar allt kom til alls að á næsta ári ætlum við að hafa þetta á einhverjum stað með veitingum því að kostnaðarlega séð ( fyrir utan alla fyrirhöfnina ) þá kemur þetta svipað út. Ótrúlegt en satt...