þriðjudagur, nóvember 20, 2007

Julen, julen, julen kommer snart…

Eða eitthvað svoleiðis. Ég get nú með stolti sagt að ég sé byrjuð að jólast. Við skötuhjúin skelltum okkur í bæinn á laugardaginn í þeim tilgangi að kaupa nokkrar jólagjafir ( eftir þessa reynslu ætla ég að versla heima á netinu !!! ). Í sakleysi okkar skelltum við okkur í Toys’R’Us. Eins og flest allir aðrir. Það var svo sem ekkert mál að komast þangað, tók smátíma að finna bílastæði en það er nú bara eðlilegt. Þegar við svo komum inn í búðina þá leit hún alveg ágætlega út svona úr fjarlægð séð. En þegar við vorum svo að reyna að finna það sem að við ætluðum að kaupa þá versnaði það all svakalega. Úrvalið var hreint og beint ekkert á þeim vörum sem við vorum á höttunum eftir. Playmobil og Pet shop. Mjög undarlegt því að þetta er nú alltaf in. Ég vona að ástæðan fyrir þessu sé sú að þetta sé bara allt búið. Þrátt fyrir það náðum við samt að versla aðeins. Verðið ? Ekkert sláandi ódýrt og eins og ég segi miðað við úrvalið þá er ég ekkert að fara þangað á næstunni.
Fyrst ég var þarna í koppavoginum ákvað ég að skella mér líka inn í Pier á meðan Gummi fór í Elko. Og eins og TRU þá náði hún ekki heldur að heilla mig. Erfitt að labba þarna í gegn, sveið hreinlega í nefið ( svipað eins og að labba framhjá LUSH ) og var ekkert að sjá neitt sérstaklega mikið sem heillaði mig. Enn ein ástæðan fyrir því að halda sig heima og versla jólagjafir á netinu.
Og nú kemur að því skemmtilegasta. Af því að það er verið að byggja einhvern turn þarna ofan í gatnamótunum við Þvagrás Kapítalismans þá er umferðin frekar erfið þarna í kring. En að það taki mann hálftíma að komast út af stæðinu !?!?!?! hvað í ands&%#$& er það eiginlega ? er ekki hægt að skipuleggja þetta aðeins betur og beina umferðinni meira í gegnum svæðið í staðinn fyrir að þjappa þangað til ekkert gerist ?
Fjand%$###&. Þetta er orðið svona pirripú blogg. Eníveis, jólaverslun...ekki að heilla mig í bráð, skelli mér bara einhvern tímann eftir kvöldmat í desember. Hef hvort eð er nóg að gera um helgar þangað til um miðjan desember ; )


c”,)

p.s. byrjuð að baka ( julen..... )

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ,
æi mikið skil ég þig! Var í stuttri ferð í bænum um daginn og nennti mjög lítið að fara í þessar stóru búðir! ógeðslega stressandi og það góða við að búa á austurlandinu er að umferðin er ekki svona skelfileg! Reyndar búið að vera óveður og ófært yfir heiðina í allan dag - en þá er nú bara notalegt að vera heima með kertaljós!
Jæja - hvenær á svo að skella sér á austurlandið!
Hilsen, Halla