fimmtudagur, nóvember 15, 2007

Guð skapaði manninn...

Guð byrjaði með að skapa asnann og sagði síðan við hann: – Þú ert Asni.
Þú átt eftir að þræla hvern einasta dag og verður kallaður heimskur. Þú
munt lifa í 20 ár.
Asninn svaraði: Ojoj þetta hljómar ekki vel. Getum við ekki sagt að ég
lifi bara í 5 ár. Guð samþykkti tillögu asnans.
Síðan skapaði Guð hundinn og sagði við hann: – Þú verður kallaður
hundur og munt einbeita þér að því að hlýða, borða afganga og standa
vörð um húsið. Þú munt lifa í 35 ár. Hundurinn svaraði: Ojoj, þetta
verður ekkert skemmtilegt líf, er ekki nóg að ég lifi bara í 15 ár? –
Guð samþykkti tillögu hundsins.
Nú skapaði Guð páfagaukinn og sagði við hann: – Þú verður kallaður
páfagaukur. Þú munt sitja úti í horni og endurtaka allt sem sagt er til
ama fyrir alla. Þú munt lifa í 75 ár. Páfagaukurinn svaraði: Þetta
hljómar frekar einhæft og leiðinlegt. Getum við ekki bara sagt 50 ár og
málið er dautt? Guð samþykkti tillögu gauksa.
Að lokum skapaði Guð manninn og sagði við hann: Þú ert karlmaður og
munt lifa góðu lífi. Þú ert vel greindur og munt ráða ríkjum á
jörðinni. Þú munt lifa í 20 ár. Maðurinn svaraði: Þetta hljómar allt
mjög vel og ég mun örugglega una hag mínum vel. En get ég ekki lifað
aðeins lengur? (Og nú sannaði karlmaðurinn greind sína): Get ég ekki
fengið 15 árin sem asninn vildi ekki, 20 árin sem hundurinn afþakkaði
og líka þessi 25 ár sem páfagaukurinn vildi ekki? Guð samþykkti
tillögu mannsins.
Þess vegna lifir maðurinn æðislegu lífi upp að 20 ára aldri. Síðan
giftir hann sig og þrælar næstu 15 árin og venst því að vera kallaður
heimskur. Næstu 20 árin fara í að uppfylla þarfir allra
fjölskyldumeðlimanna, borða afganga og passa húsið. Að lokum situr
karlmaðurinn síðustu 25 ár ævinnar úti í horni og endurtekur allt það
sem sagt er til ama fyrir alla í nánasta umhverfi.

c",)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Haha!