miðvikudagur, febrúar 07, 2007

Kominn tími á blogg ?

Ok, ok, þá það. Skal blogga aðeins og lofa að láta ekki líða svona langt á milli.

Þá er víst komið nýtt ár og ágætis ári lokið. Mikil afrek á síðasta ári og það stefnir í álíka afrek þetta árið, ef ekki meiri. Það á allt eftir að koma í ljós en eins og við sögðum um áramótin þá er þetta árið !!!

Nú, við erum búin að plana fyrstu utanlandsferðina okkar þetta árið. Við erum að fara út til Spánar með nágrönnunum í sumar. Við erum búin að finna okkur æðislegt hús til að leigja, með einkasundlaug og það er meira að segja ísskápur við sundlaugina. Sem á sko örugglega eftir að koma sér vel. Allt er frágengið og við teljum bara niður dagana ( eða vikurnar réttara sagt ). Þessi ferð kemur eiginlega í staðinn fyrir stóra fermingarveislu Þórunnar Önnu, við ákváðum að hafa bara minni veislu heima fyrir þá nánustu vini og ættingja og skella okkur frekar í sólina. Og ég held að við eigum sko ekki eftir að sjá eftir þessari ákvörðun.

Annars er allt gott að frétta úr Mosó, krökkunum gengur alveg ágætlega í skólanum og Þorvarður farinn að læra meira heima eftir að við fórum að skammta í hann tölvutímann per dag. Drengurinn er bara allt annar eftir þetta. Kristín er farin að stafa sig í gegnum orð og les og les á hverjum degi. Skólinn snýst um lítið annað en lestur og smá stærðfræði, hún er voðalega stolt af sér þegar hún þilur upp hinar og þessar samlagningarnar sem eru alltaf réttar. Blessað barnið veit ekki enn að þetta á bara eftir að þyngjast. Þórunn Anna stendur sig eins og hetja í skólanum, með einkunnir upp á 9 og 9.5. Það eina sem hún getur bætt sig í er stærðfræðin og er það allt í vinnslu. Maður getur nú ekki verið séní í öllu ??

Og ég og Gummi vinnum bara og vinnum. Erum búin að vera í nokkrum veislum þetta árið og það byrjaði auðvitað með þrettándagleði í botnlanganum þar sem við skáluðum í eðalkampavíni sem við fengum í jólagjöf. Og svo var komið að tilteknu fimmtugsafmæli sem hefur verið á milli tannanna á fólki síðan þá. Elton var auðvitað flottastur og ég fæ enn gæsahúð þegar ég heyri lögin hans í útvarpinu. Og maturinn, algjör snilld. Svo núna um síðustu helgi var þorrablót Samskipa en þar spilaði Elton nú bara í græjunum, gat ómögulega mætt þá helgi. En þetta var þrusupartý, bara svona eins og venjulega. Og sunnudagurinn góður eftir því... NOT !!!
Svo stefnir bara í rólega helgi, gott að fá eina svona við og við. Gerist ekki oft :s og um að gera að njóta þess þá mun meira.

Og síðast en ekki síst ;)varð ég frænka í dag. Gilla og Stefán eignuðust lítinn pjakk núna eftir hádegið og sá fær flotta kennitölu ;) 070207, verður ekki erfitt að muna hana. Innilega til hamingju, elskurnar mínar.

Jæja, komið gott í bili. Gullfiskaminnið fer alveg með mann þegar það líður svona langt á milli. Eins gott að það verði styttra á milli næst...

c”,)

Engin ummæli: