Jæja, þá er Kristín Fríða búin að missa fyrstu barnatönnina. Nú er bara stórt gap í munninum á henni og ekkert smá sætt að heyra hana tala því að essin fljóta núna fram án þess að nokkuð stoppi þau. Fyndið hvað þau breytast við það að missa geiflurnar. Ég er búin að reyna að ná nokkrum myndum af henni með tannleysinu en það er erfitt því hún er nývöknuð og voðalega þreytt. En ég held áfram í dag ;)
Annars bara lítið að frétta, Gummi farinn í vinnuna ( reyndar bara í dag ) svo að við erum að slæpast hérna heima við. Þórunn Anna er á reiðnámskeiði fyrir hádegi þessa vikuna svo hún þarf að vakna snemma. En ekki við hin og þess er notið til hins ýtrasta. Enda er gott að kúra.
Veðrið er auðvitað orðið ansi íslenskt í dag, hljóp út á pallinn áðan og bjargaði sessunum úr stólunum okkar því það var byrjað að rigna. En það er hlýtt úti svo það er kannski ekkert hægt að kvarta mikið. Ég vona bara að veðrið verði orðið súpergott á föstudaginn þegar við skellum okkur í sumarbústaðinn ;)
Jæja, farin að sinna tannlausa greyinu...
c",)
þriðjudagur, júlí 25, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Fer sú tannlausa ekki að byrja í skólanum??! Knús, Ragnheiður.
jebb, orðið stutt í skólabyrjun og þá fer skólataskan með Kristínu í skólann :s
Skrifa ummæli