mánudagur, mars 27, 2006

Þá...

eru boðskortin í ferminguna hjá Þorvarði loksins farin í póst. Loksins, loksins. Gott að því er lokið. Nú er bara að undirbúa restina, kemur allt saman.

Í dag hefði mamma orðið 58 ára gömul, blessunin. Ég fór nú ekki í kirkjugarðinn, það hefði hvort eð er ekki logað á kerti í þessu roki. Ég kveiki bara á kerti hérna heima við, svona til að ylja mér við. Skrýtið að hugsa til þess ef hún væri enn hérna á meðal okkar. En það þýðir víst lítið að spá í það. Hún er nú kannski að fylgjast með okkur þarna uppi einhvers staðar. Með kisunum okkar öllum, eins og Kristín heldur fram. Sé hana í anda sitja í kisufaðmi, þær voru nú ekki ófáar um tíðina.

Er að losna við strengina síðan á fimmtudaginn. Við funduðum í dag og settum saman 2 lið í vinnunni sem að keppa á laugardaginn í fyrirtækjamóti ÍSÍ. Þetta verður bara stuð. Ég sagði Kristínu að hún gæti komið með mér og verið með Sollu stirðu á meðan ég væri að keppa en hún vill það alls ekki. Kemur á óvart en hún vill ekki hitta Glanna Glæp og ekki séns að segja henni að hann komi ekki. Hún tekur sko ekki svoleiðis sénsa. Svo hún verður væntanlega heima á meðan ég sprikla...

Jæja, farin að kúra með kellunni...hafið það gott í kvöld sem endranær

c",)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HAHAHAHA.. Já Bogga mín.. frítt klám;););)
En allavega ég er hætt að blogga svona gelgjulega svo þú getur haldið áfram að lesa.. og mamma tilkynnti mér að þú ert að fara í eitthvað svona langstökksmót eða eitthvað:p Gangi þér vel elsku frænka:)
PS: Engin pressa en hvernig gengur með peysuna mína?(A)..
PS2: Ég er fara til Tenerife á fimmtudaginn:D..Nananan;Þ