ég gleymdi alveg að segja frá flottustu veislu ársins sem að ég var í um síðustu helgi. Reyndar byrjuðu veisluhöldin helgina áður en seinni veislan sló allt út. Það var nefnilega verið að vígja vöruhótelið hjá Samskipum. Framan af þá var ég ekkert á leiðinni þangað en síðan á fimmtudeginum fékk ég að vita að mökum væri boðið með. Jibbí jei, ég hafði ekkert viljað lesa póstana sem að Gummi var að sýna mér um þetta því þá hefði ég verið svekkt. Sko...við (ég með Sissu og Bjarna )mættum niður í vöruhúsið á laugardaginn um 6 leitið og þá var strax kominn alveg hellingur af fólki, mætir menn úr þjóðfélaginu og konur líka. Við mér blasti eðalveigar og veitingar og fyrr en ég vissi af var ég komin með cosmopolitan í hendur og teigaði vel og mikið. Það voru veitingar út um allt. Það var kartöfluakur, tilraunastarfsemi með alls konar kartöfluréttum. Það var vodkabar með fljótandi veitingum, einhver desertbar sem að ég missti af í gleði kvöldsins. Þarna voru ostrur ( mmmmmmmmmmm ), hrátt nautakjöt með gúmmelaði, kavíar og svo grillið. Slef, slef, þeir voru með nautakjöt á teini, kjúkling og risarækjur og þarna stóð ég bara og gúffaði í mig. Ef ég varð leið á cosmo þá fékk ég kínverskan bjór í hönd, ekkert verra ;) Klukkustund eftir að herlegheitin byrjuðu þá var strax farið að bera saman vígslu á öðru vöruhóteli hér í bæ sem var bara algjört prump miðað við þetta. Og kvöldið var rétt byrjað. Allt í einu voru tjöld dregin frá á sviðinu og sinfónían öll sat og byrjaði að spila undir eins. Ég horfði í kringum mig og sá að fólk gapti bara af undrun og hrifningu sem minnkaði svo ekkert þegar að Diddú steig á svið og þandi raddböndin. Fólk hrópaði og kallaði því að það er ekki möguleiki að klappa með báðar hendur fullar af veitingum. Og kvöldið varla byrjað. Næstir á svið komu Brimkló með Ragga Bjarna í för. Hann náði salnum algjörlega á sitt band og allir sungu í Samskipakórnum sem myndaður var á staðnum. Þegar þarna var komið var fólk farið að dilla sér aðeins og áfengisprósentan orðin soldið há í blóðinu. Þetta var sko ekki búið því að Sálin kláraði kvöldið með fullt af gömlum slögurum sem allir sungu með. Algjörlega geðveikt og ógeðslega gaman. Svo tókst okkur að lokum að draga Begga öryggisstjóra með okkur niður í bæ þar sem við kíktum inn á REX með öllum hinum uppunum. Pissfullum og geðslegum. Þvílíkur troðningur og bara æi... en samt gaman :)
Þannig að kvöldið var frábært í alla staði og ekkert kemst nærri því í framtíðinni. Þá er ég búin að deila smá minningum með ykkur...ég gapi enn ;)
c",)
miðvikudagur, janúar 19, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Brimkló og Sálin, ó mæ god, vildi ég hefði verið þarna. Sjáumst eftir 3 vikur snúllan mín.
Sigga
Skrifa ummæli