og ekki orð um það meir. Yndislegt að það sé kominn föstudagur og löng helgi framundan. Hún verður ansi fjörug, Þorvarður verður fermdur á sunnudaginn og allt að smella saman. Ég var að enda við að sjóða hangiketið sem verður svo sneitt niður á flatbrauð og bara eftir að gera nokkrar brauðtertur, verkefni morgundagsins.
Við mæðgurnar erum bara einar heima í kvöld, Gummi flaug til Egilsstaða í hádeginu og er í augnablikinu að knúsa kúnnana fyrir austan. Verður eflaust mikið stuð hjá þeim í kvöld. Þorvarður fór til pabba síns í dag og kemur heim á morgun með jakkafötin sín og sálmabókina og Þórunn ætlar að gista í Stórateig í kvöld hjá tengdó, borða nammi og eitthvað fleira fínerí. Svo ég og Kristín ætlum bara að kúra saman í kvöld. Ég ætla bara að njóta þess að slappa af í kvöld, geri ekki mikið af því á morgun, stefnir ekki í afslöppun fyrr en eftir 4 á sunnudaginn þegar veislan verður búin.
Við afrekuðum að kaupa okkur nýjan bíl í vikunni. Fyrir valinu varð audi 6, voðalega fallegur kaggi beint úr kassanum sem ég fæ væntanlega ekki að snerta mikið á næstunni. Nú er bara spurning hvaða bíll verður frúarbíllinn, við erum komin með kaupanda að gittinu en ætlum að auglýsa mösduna um helgina og sjá hvort einhver hafi áhuga. Það kemur bara allt í ljós með tíð og tíma...
Ég sat aðeins með Fanneyju og Kollu í mat í gær. Upp spratt skemmtileg umræða um kynlíf og stellingar. Fanney var að segja okkur af einni sem var verið að segja frá í saumaklúbb hjá henni fyrr í vikunni. Við sáum auðvitað húmorinn í þessu öllu og grenjuðum af hlátri og ég held að það hafi ekkert farið framhjá fólki hvað við vorum að tala um. Stellingin er sem sagt þannig að konan er á maganum og stendur eiginlega á höndum á gólfinu en fæturnar eru í rúminu. Svo þetta er svona aftan að stelling. Við sáum auðvitað að það er þá orðið hættulegt að missa bók eða fjarstýringu í gólfið og eiga í hættu að fá makann aftan að sér í ham.
Svo sagði Fanney okkur aðra sögu af pari sem var spurt úti á götu hvenær þau höfðu haft mök síðast. Kallinn var kotroskinn og sagði að það hefði verið í morgun. Hvar var spurt og þá kom upp úr dúrnum að það hafði verið í eldhúsinu. Svo þegar konan var spurð sömu spurningar þá sagði hún að það hefði verið um morguninn og þegar hún var spurð hvar þá kom smá hik á hana. Henni var sagt að kallinn væri búinn að segja og hún þyrfti eiginlega að svara. Hún hikaði enn en að lokum svaraði hún. " Hvar ? Í rassinn !!!" sem voru kannski full miklar upplýsingar. Og auddað kom húmorinn fram í okkur, hvaða lúbrikant ætli þau hafi notað ? Nú auðvitað smjerið, svo handhægt þegar það er á morgunverðarborðinu. Svo urðum við eiginlega sammála um það að ef að bók eða fjarstýring dettur fram úr rúminu þá er um að gera að leyfa henni bara að liggja þar áfram. Og ekkert vera að halla sér yfir morgunverðarborðið...nema makinn sitji andspænis manni og engin hætta á svona aftanáuppákomu ;)
Eftir 13 daga verð ég þessum tíma væntanlega stödd á argentísku steikarhúsi að drekka margarítur í könnuvís og snæða guðdómlega nautasteik með hvítlaukssósu. Vonandi verður nú veðrið betra í Amsterdam en það er í augnablikinu, ég held að það sé heitara hér á klakanum en þar í augnablikinu. Hugsa sér að það er 20 stiga hiti á Egilsstöðum í dag. Ótrúlegt, svo ekki sé meira sagt...
Jæja, farin að sinna sætabollunni minni. Hafið það gott í kvöld, njótið þess að knúsa eins og ég ætla að gera. Og skiljið bókina eftir á gólfinu !!!
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Já nú halda allir að ég tali bara um kynlíf í lönsj...iiiii geri það svo ekki:)
Nei, bara svona endrum og eins. En þegar við tölum um 6 þá fer það ekkert á milli mála, sérstaklega ekki þegar Kolla kemur með allar flottu hreyfingarnar til að leggja áherslu á orð okkar ;)
Skrifa ummæli