sunnudagur, nóvember 27, 2005

ÉG ER ÆÐISLEG...

ú ú ú !!

Hér sit ég heima hjá mér á sunnudegi með þetta netta gat á hausnum, plástur í hárinu og með nettan hausverk. Af hverju ? Ég veit það varla sjálf :s Málið er að við vorum niðri í Samskipum í gærkvöldi á lítillri uppskeruhátíð Ísheima. Vel var veitt, alltaf fullt glasið hjá mér eins og það er nú hættulegt. Ég skemmti mér konunglega allt kvöldið en svo þegar við vorum bara 4 eftir þá var mér farið að líða hálfundarlega. Ég man að ég hugsaði með mér að ég yrði að fara á klósettið og svo veit ég bara ekki meir...fyrr en ég ranka við mér í blóðpolli á gólfinu. Ég hafði víst náð því að taka einhver 2 skref áður en það leið yfir mig og ég féll bara niður í ganginum. Ein hárspennan gekk víst fulllangt í hausinn á mér og afleiðingin er að ég var saumuð 5 spor í hvirfilinn, eða því sem næst. Þegar ég rankaði við mér þá skildi ég ekkert í neinu, ég hafði rotast og skildi ekkert í því hvaða hasar þetta væri í kringum mig. Svo þegar ég leit á hendina á mér sem var löðrandi í blóði þá leið mér nú ekkert sérlega vel með sjálfa mig. Það var hringt á sjúkrabíl ( fór nú síðast í svoleiðis dollu með mömmu upp á spítala fyrir rúmum 7 árum síðan og finnst það alltaf jafn óspennandi farkostur). Yndælis hjúkkur og læknar tóku á móti mér á slysó ( sem betur fer engin sem ég kannaðist við ) og mér var ekið inn á stofu, ég skoðuð og ákveðið að sauma mig aðeins. Ég get svo eiðsvarið það að þegar þau deyfðu mig þá hefði ég frekar viljað vera skotin í fótinn, hrikalega sárt :s Þegar deyfingin var svo farin að virka vatt læknirinn sér í saumaskapinn. Allt í einu kemur ein hjúkkan hlaupandi og segir honum að hann ætti að koma aðeins fram og þannig skildi hann við mig, búinn að sauma 3 spor og ég enn með nálina í hausnum !!! Klukkutíma síðar kemur ein hjúkkan og klárar saumaskapinn, ég lagði mig bara í millitíðinni og Gummi rölti um gangana á meðan ég svaf ( ég er svo æðislegur félagsskapur !!!)
Ég veit svo ekkert hvenær við komum heim, ég háttaði bara og fór í rúmið. Vaknaði svo í morgun með þennan yndislega hausverk og smá rugling. Gæti verið að gumsið hafi eitthvað hrist til í gærkvöldi þarna inni í hausnum á mér. Þannig að þessum sunnudegi verður eytt í sófanum að horfa á seríu 2 af Shameless þáttunum ( sem voru sýndir á rúv á fimmtudagskvöldum í haust ). Yndislegt að horfa á þessa vitleysu.
Best að fara að leita að einhverjum verkjalyfjum, hlýt að eiga eitthvað einhvers staðar.

Já, og btw...í dag er fyrsti sunnudagur í aðventu og aðeins 27 dagar til jóla : ) bara svona svo þið vitið...

c",)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Úffúffúff:s greyið byttan mín! Nú er það opinbert, þú mátt eiga fyrsta sætið - ekki ætla ég að reyna að keppast við þig um það. Ehhemm. Æ, þetta hlýtur að hafa verið svo sárt og óþægileg lífsreynsla, get rétt ímyndað mér það. Vonandi er hausinn kominn í lag, baráttukveðjur, Ragnheiður.

Bogga sagði...

Takk Ragnheiður mín. Ég þrauka þetta, bryð íbúfen og tek hverja klukkustund fyrir sig. Nú bara er að ákveða hvað skal gera næst, en um að gera að sjá kómísku hliðina á þessu öllu saman ; )