er farin að geta bloggað heima hjá mér svo að Kári blessaður getur farið að hætta að borga mér formúur fyrir að blogga í vinnunni...hehehe
Alltof mikið að gera í vinnunni þessa dagana, er að spá í að stofna til veðmáls...hversu lengi endist ég þetta árið ?!?!?!?!?! Ég þrauka þetta svo sem en er ekki til mikils gagns á kveldin, sófinn mitt helsta og besta húsgagn. Er að koma því inn hjá Stínu fínu að sofna sjálf og það gengur svona lala...það gekk nebbla ekki lengur að ég væri að sofna með hana í fanginu á kvöldin, ekki mikið aksjón í mér þá...ónei :S
Og svo má auðvitað ekki gleyma því að míns er sko farin að mæta í ræktina alveg hreint rúmlega 6 á morgnana...þegar það er sko enn nótt hjá flestu heilbrigðu fólki. Ég telst sem sagt ekki til þeirra lengur...þ.e. þeirra heilbrigðu !! bara líkamlega en ekki alveg á andlega sviðinu en það er svo sem í lagi, alltaf gaman að vera svona soldið gaga...
Er sko búin að stefna Ragnheiði til mín annað kvöld að horfa á úrslitin í IDOL. Er búin að koma við í ákveðinni ríkisverslun og versla svona pínu pons til að fá mér í litlu tánna. Svo verður tekið aðeins betur á því á laugardaginn þegar við skötuhjúin förum á þorrablót. Ég er sko búin að tékka á því nokkrum sinnum að það verði almennilegur matur á borðum líka því að ég get ómögulega séð það fyrir mér að öldrykkja og hrútspungar ( eða eitthvað þaðan af verra ) eigi vel saman.
Er svo farin að finna aðeins fyrir því að það styttist í að ég skríði á fertugsaldurinn...frekar fáranlegt að setja þetta svona upp. Ekki er 13 ára peyji sagður vera á tvítugsaldri. Og undanfarin ár hef ég aldrei sagt að ég sé á þrítugsaldri. En nú er sko komið að því...bráðum kemst ég á fertugsaldurinn... :( lifi bara lífinu þangað til...hehehe og svo snarskánar það eftir tiltekinn dag í mars þegar ég telst vera orðin mjög svo gömul og þroskuð ( bah = bakföll af hlátri ) Fór nebbla til vinkonu minnar um helgina og þar var smá bömmer í gangi yfir aldrinum. Ekki hef ég nú miklar áhyggjur af því, gerði mér svo sem litlar væntingar um tvítugt um hvar ég ætlaði að vera um þrítugt...þar af leiðandi get ég ekki blammerast yfir því !!
Minn kæri stendur hérna bak við mig og segir að ég verði þá komin í Players flokkinn...bý svo sem í réttu bæjarfélaginu en er ekki alveg farin að stunda fyrrnefndan take away staðinn hérna í nágrenninu. Og sá getur trútt um talað, skríður sjálfur á fertugsaldurinn aðeins seinna en ég á árinu...greyið :)
Annars bara ljúft lífið þessa dagana, er yfir mig ástfangin og lífið hreinlega leikur við mig. Þrátt fyrir aldurinn...hehehe
c",)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli